Aðsent

Trúverðugleiki og sanngirni í sjávarútvegi
Þriðjudagur 18. október 2016 kl. 06:00

Trúverðugleiki og sanngirni í sjávarútvegi

- Aðsend grein frá Þórólfi Júlían Dagssyni

Ein fyrsta spurningin sem við fáum þegar við tölum um að leigja út veiðiheimildir, er hversu hátt það verð ætti að vera. Til að svara spurningunni er fróðlegt að bera saman kvótamarkaðsverð kvótahafa sem nú er starfræktur, við verðlagningu í gegnum veiðigjöld. Núverandi leiguverð á þorskkvóta er lægst 175 krónur á kílóið og hæst 230 krónur. 12% af úthlutuðu heildaraflamarki var leigt út á síðasta fiskveiði ári og skilaði 9 miljörðum króna til handhafa kvótans sem kjósa að leigja hann frá sér. Í núverandi kerfi borga útgerðarfélögin veiðigjald sem hefur breyst verulega frá ári til árs, allt frá því það var sett á. Það virðist handahófskennt hversu há þau eru ákvörðuð enda enginn rökstuðningur eða forsendur sem fylgja ákvörðun veiðigjalda. Fyrir fiskveiðiárið 2015-2016 hljóðar veiðigjaldið upp á 9,50 kr. á hvert þorskígildis kíló. Þegar þetta gjald var í kringum 23,20 kr. á hvert þorskígildis kíló þá barmaði útgerðin sér svo yfir íþyngjandi álögum að í látunum hélt þjóðin að sjávarútvegurinn væri að fara á hausinn út af veiðigjöldum.

Samkeppni á markaði eða fákeppni í skjóli einokunar
Útgerðin leigir sem sé frá sér aflaheimildir á tíu sinnum hærra verði en hún telur að hún sé sjálf aflögufær um að greiða. Eru þeir sem leigja kvótann í dag betur stæðar útgerðir en almennt gerist? Hver er skýringin á þessum tvöföldu skilaboðum? Þetta ætti fólk að hafa í huga þegar rætt er um að veiðiheimildir fari á uppboð. Hræðslan við breytingar og að veiðigjaldið hækki óhóflega. Hræðslan við samkeppni á jafnréttisgrundvelli, við nýtt fólk með nýjar hugmyndir, hræðslan við frjálsan markað. Besti sjávarútvegur í heimi er hræddur. Þessar breytingar þýða jú að þeir sem hafa áður starfað hjá útgerðinni eigi möguleika á sjálfstæðum rekstri, sjómenn geti loksins fengið það frelsi að sækja sjóinn á sínum forsendum, að einokunin í sjávarútvegi renni sitt skeið á enda. En svarið við upphaflegu spurningunni er alveg klárt: Ef útgerðin hefur ráð á að leigja til sín kvóta á markaði í dag, þá hefur hún ráð á að leigja hann á markaði á morgun.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þórólfur Júlían Dagsson
3. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi