Tólf sporin – Andlegt ferðalag
Boðið verður upp á Tólf spor Andlegt ferðalag hjá Hjálpræðishernum í Reykjanesbæ að Flugvallarbraut 730, Ásbrú í vetur.
Fjöldi einstaklinga hafa farið í gegnum þessi spor á umliðnum árum og aukið með því lífsgæði sín. Við hvetjum ykkur til að koma og kynna ykkur þetta samfélag sem opnað hefur mörgum nýja sýn á lífið.
Kynningarfundur verður haldinn að Flugvallarbraut 730 miðvikudaginn 30. September kl. 19:00. Þar gefst tækifæri til að kynna sér hvernig Tólf spora ferðalagið er leitt í kirkjunni.
Fundirnir verða vikulega á miðvikudögum kl. 19:00 til 21:00, farið er yfir kynningarefnið á fyrstu fjórum fundunum en á fjórða fundi er hópunum lokað.
Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta námskeið þeim að kostnaðarlausu utan þess að þeir þurfa að greiða fyrir vinnubók sem kostar kr. 3.000.-.
Upplýsingar um Tólf spora námskeiðið veitir: María Hauksdóttir í síma 421-5181 og gsm. 864-5436 og hjá Ester Daníelsdóttur í síma 421-7886 og gsm. 694-3146.