HSS
HSS

Aðsent

Til safnaða Útskálaprestakalls
Fimmtudagur 20. ágúst 2009 kl. 16:55

Til safnaða Útskálaprestakalls

Kæru vinir.

Ég þakka ykkur kærlega fyrir allan hlýhug og þann stuðning sem þið hafið sýnt mér í orðum og verkum.  Það hefur reynst mér og fjölskyldu minni óendanlega mikils virði  og einkar dýrmætt. 

Ég þakka ykkur samstarfið, samverustundirnar og góða viðkynningu.  Ég  óska ykkur öllum friðar og guðsblessunar í fullvissu þess að söfnuðir prestakallsins og kirkjustarf allt er í góðum og hæfum höndum nýkjörins sóknarprests sr. Sigurðar Grétars Sigurðssonar. 

Honum og fjölskyldu hans sendi ég hamingju- og blessunaróskir og hvet ykkur til þess að bjóða þau hjartanlega velkomin, en þeim og ykkur öllum óska ég  gæfu og velgengni í lífi og starfi.

Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir


Bílakjarninn
Bílakjarninn