Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Aðsent

Til fyrirmyndar
Fimmtudagur 27. mars 2008 kl. 16:24

Til fyrirmyndar

Unglingur úr grunnskóla hafði samband við mig í gær (mánudag) og spurði hvort hann mætti hitta mig og vildi ræða eitthvað málin. Við hittumst og tjáði unglingurinn mér að sér liði mjög illa og væri farin að missa allan áhuga á námi, tómstundum og fleiru. Er farin að haga sér eins og sé í neyslu en er það ekki.

Mjög ákveðin og ábyrgur unglingur en hefur í gegn um árin þurft að umgangast bæði fólk í neyslu og aðra erfiðleika.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Er því orðin mjög meðvirkur aðstandandi, kvíði, ótti farin að gera vart við sig og á orðið mjög erfitt.

Þar sem misnotkun á áfengi eða efnum er, þróast óheiðarleiki og það gerist einnig með unga aðstandendur sem aðra.

Hjá þessum ungling er óheiðarleikin farin að taka sér bólfestu og er farin að segja ósatt og hagræða hlutum þannig að öðrum líður betur, en við þessar aðstæður er unglingnum farið að líða illa vegna ástandsins og vill gera eitthvað í sínum málum. Er það þungt og erfitt skref fyrir ungling að þurfa að opna umræður um þessi mál við fjölskyldu sína og aðra og fylgja því eftir.

Þetta er svo frábært þegar svona ungt fólk tekur af skarið að maður fyllist stollti og það  þarf kjark til að til að taka svona ákvörðun en hún er líka þess virði að gera, bæði gagnvart sjálfum sér og öðrum.

Þessi unglingur er að gera það sem aðrir ættu að gera.

Vona að margir ungir sem fullorðnir taki sér þennan ungling til fyrirmyndar og taki upp TÓLIÐ.

Það er aldrei of seint að láta sér líða vel, eftir hverju erum við alltaf að bíða.

Það gerist ekkert ef við tökum ekki af skarið.

 

Góðir vinir

Einnig eigum við mörg góða vini sem eru ráðalaus og vita ekki í hvern fótinn þau eiga að stíga og eru ekki heldur tilbúin að takast á við hlutina og velja frekar flóttaleiðina eins og svo margir aðrir( VÍMUNA )því þá hverfa allar áhyggjur en þó einungis í skamman tíma.

Þessi einfalda leið er yfirleitt tekin af því viðkomandi þorir ekki að tjá sig þar sem það skiftir máli og gerir því ekkert fyrir mann annað en að láta öllum líða enn verr og er því miður búin að eyðileggja margar fjölskyldur.

Við getum því miður ekkert gert, því að þau telja sig svo klár og vita þetta allt saman miklu betur við hin og allir þeir sem eru búin að fara í gegnum þetta allt saman, og hafa einfaldlega ekki kjark til að takast á við sjálfan sig.( óttaslegin )

Eftir hverju eru þau að bíða.

Jú þau eru að bíða eftir að þetta bara lagist en eru  einfaldlega hrædd.

En þetta bara einfaldlega lagast ekki sí svona.

Þau verða að taka einlæga og heiðarlega  ákvörðun og vilja gera eitthvað í sínum málum, framkvæma og fylgja henni svo eftir.

Þá fyrst birtir til og við getum við farið að aðstoða þau og vera til staðar.

 

 

Kveðja

Erlingur Jónsson

[email protected]

864-5452