Bygg
Bygg

Aðsent

 Þverpólitísk samvinna skilar sér í nýjum störfum!
Fimmtudagur 2. september 2010 kl. 17:15

Þverpólitísk samvinna skilar sér í nýjum störfum!

Þegar horft er yfir sundurleitt samstarf sveitarfélaganna á Suðurnesjum þá er það ávalt gleðiefni þegar fólk nær að vinna saman og þá einkum og sér í lagi þegar þverpólitísk samstaða fólks úr öllu pólitíska litrófinu nær að taka höndum saman, skilja ólíkar skoðanir á málefnum eftir heima og horfa samhent fram á veginn til að vinna bug á atvinnuleysisdjöflinum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það var nákvæmlega það sem gerðist við undirbúning ECA þotuverkefnisins þar sem fólk úr öllum flokkum kom að því að veita þessu spennandi verkefni brautargengi og þannig auka fjölbreytni starfa á Suðurnesjum. Hvort sem þar er um að ræða flugvirkja, tölvunarfræðinga, skrifstofufólk eða verkamenn, þá verður mikil eftirspurn eftir öflugum krafti Suðurnesjamanna til að fylla stöður innan fyrirtækisins.

Þess ber einnig að geta að verkefnið var unnið í sameiningu við alla þingflokka og var aðdáunarvert að sjá hvernig bæði Kristján L Möller og Össur Skarphéðinsson auk þingmanna okkar í Suðurkjördæmi stigu fram og lögðu sig alla fram til að efla atvinnusköpun með okkur Suðurnesjamönnum.

Vel má vera að það sem hér er skrifað sé full væmið en það verður að segjast eins og er að fyrir 27 ára mann sem stígur nú sín fyrstu skref í heimi íslenskra stjórnmála þá fyllir slík samvinna mig eldmóði og áhuga um að halda áfram af fullum krafti.

Enn er erfitt verkefni fyrir höndum og ECA verkefnið er einungis ein sneið af kökunni. Nú þurfum við því að standa klár á því, öll sem eitt, að vinna áfram saman að því verkefni að koma atvinnuleysinu í eðlilegt horf!

Það gerum við ekki með því að gráta yfir því hvað allir eru vondir við okkur, heldur stöndum við með höfuðið hátt, horfum fram á veginn og berjumst áfram þar til atvinnuleysistölurnar verða hér lægstar af öllu landinu!

Ég vona að allir skemmti sér sem best á Ljósanæturhátíðinni sem nú er gengin í garð og geti glaðst yfir þessum áfangasigri okkar.

Hjörtur M Guðbjartsson

Varaformaður Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar