Aðsent

Þorgrímur Þráinsson með fyrirlestur FFGÍR
Þorgrímur Þráinsson.
Sunnudagur 26. nóvember 2017 kl. 06:00

Þorgrímur Þráinsson með fyrirlestur FFGÍR


FFGÍR, Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ, bjóða öllum foreldrum á fyrirlestur með Þorgrími Þráinssyni þriðjudaginn 28. nóvember kl. 18 til 19 í Íþróttakademíunni.

Þorgrímur Þráinsson kynnir fyrirlestrana sem hann heldur fyrir nemendur í vetur. Annars vegar Verum ástfangin af lífinu sem er fyrir nemendur í 10. Bekk og hins vegar Vertu hetjan í þínu lífi — með því að hjálpa öðrum, sem er stílaður inn á miðstig. Í báðum fyrirlestrunum hvetur Þorgrímur nemendur til að bera ábyrgð á sjálfum sér, hjálpa öðrum og vanda sig í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur. Hann notar fjölda fyrirmynda, sem eru algjörlega til fyrirmyndar og nemendur geta lært af. „Litlir hlutir skapa stóra sigra“ er rauði þráðurinn sem og samkennd og vinátta.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fyrirlesturinn byggist á myndum, myndböndum og eftirminnilegum sönnum sögum. Þorgrímur talar ennfremur um sterka liðsheild og segir frá því hvað við getum lært af landsliðinu í fótbolta en hann hefur starfað með liðinu í 10 ár.