Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þjálfaranámskeið ÍAK og ÍSÍ
Mánudagur 13. ágúst 2007 kl. 17:26

Þjálfaranámskeið ÍAK og ÍSÍ

Þjálfaranámskeið á vegum Íþróttaakademíunnar og Íþróttasambands Íslands, ætlað fyrir þjálfara í boltaíþróttagreinum, verður haldið þriðjudaginn 14.ágúst, klukkan 18.00-20.00 Í Mýrinni, Garðabæ.

Dagskráin er svohljóðandi:

Frekrik Brenna Lund, styrktar- og þolþjálfun.
Fredrik Brenna Lund hefur unnið með mörgum af bestu félagsliðum í Noregi,  í knattspyrnu, handknattleik og körfuknattleik.Hann þjálfar við Ólympíutoppinn í Noregi og er einn virtasti þjálfari Norðmanna. Fredrik er 3.DAN í júdó (með svarta beltið) og hefur náð framúrskarandi árangri í að byggja upp líkamsstyrk leikmanna.
Á námskeiðinu mun Fredrik kenna íslenskum þjálfurum krefjandi æfingar með áherslu á styrktar- og þolþjálfun. Ekki verður notast við nein lóð eða tæki heldur einungis eigin líkamsþyngd og líkamsþyngd félaga.

Erlingur Richardsson, ólympískar lyftingar með handlóðum.
Erlingur Richardsson Erlingur Richardsson hefur verið í miklum samskiptum við Istvan Javorek og heillaðist af æfingum og æfingakerfum hans.  Á námskeiðinu mun Erlingur kynna æfingar og æfingakerfi frá Istvan Javorek sem starfar sem þjálfari fyrir afreksíþróttafólk í Johnson County Community háskólanum í Kansas í Bandaríkjunum.
Áður en Istvan flutti til Bandaríkjana sá hann um  þjálfun á landsliði Rúmena í ólympískum lyftingum á árunum 1960-1980. Styrktarþjálfunin byggist á samspili ólympískra lyftinga og annara tvíliðamótaæfinga sem er skeytt saman í mjög svo krefjandi en árangursríkt æfingakerfi, þar sem fyrst  og fremst eru notuð handlóð við æfingarnar. Javorek hefur skrifað margar greinar í virt tímarit eins og Muscle and Fitness sem vöktu mikla athygli víða um heim. Það hefur orðið til þess að hann ferðast nú mikið og miðlar af reynslu sinni til ólíkra hópa eins og körfuknattleiksliðs Chicago Bulls og enska landsliðsins í ruðningi (Rugby).


Á eftir erindunum verða boðnar veitingar.

Verð: 4.000kr.
Skráning á [email protected] og í síma 420-5500.
Greiðist á staðnum

Fyrir hönd Íþróttaakademíunnar,
Kristján Halldórsson
S: 898-6949
Sigurður Ingimundarson
S: 896-5243

Mynd: Námskeiðið er ætlað öllum þjálfurum í boltaíþróttum. Vf-mynd: Úr myndasafni.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024