Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þið gerðuð Ljósanótt að svo frábærri skemmtun!
Mánudagur 3. september 2007 kl. 15:05

Þið gerðuð Ljósanótt að svo frábærri skemmtun!

Ágætu íbúar  og gestir.

Ljósanótt var nú haldin í 8. sinn í Reykjanesbæ. Einkenni var að þátttaka var mikil alla fjóra dagana sem hátíðin stóð, frá fimmtudegi til sunnudags.
Vel á 5. hundrað manns lögðu hendur á plóginn við að skapa sýningar, verslun, þjónustu og öryggi svo sem best varð á kosið.
Opnunaratriði grunnskóla- og leikskólabarna var frábært að venju og markaði upphaf að fjölmörgum vel unnum sýningum um allan bæ. Mikill fjöldi íbúa fékk góða gesti til sín og þannig má segja að hver einasti íbúi hafi haft hlutverki að gegna á þessari mögnuðu hátíð.

Þakklæti okkar til þeirra sem lögðu sig fram um að þjóna öðrum með svo margvíslegum hætti á ljósanótt er mikið. Án sýninga og skemmtiatriða, áhugamanna og atvinnumanna, einstaklinga og hópa, heimamanna og aðkomumanna, væri ljósanótt ekki það sem hún er orðin.

Unglingarnir okkar voru til fyrirmyndar, eins og jafnan. Lögregla og öryggissveitir sinntu starfi sínu af sömu alúð og við þekkjum þau fyrir og leystu verkefni sín frábærlega. Allir eru sammála um að þessi ljósanótt hafi farið afar vel fram.

Það var leitt að gestir okkar af höfuðborgarsvæðinu lentu í miklum umferðartöfum á leiðinni heim á aðfararnótt sunnudags. Þrengingarnar vegna vegaframkvæmda við Grindavíkurveg og Voga voru þar helsti vandi. En það verður leyst á næstu Ljósanæturhátíð okkar, því tvöföldun Reykjanesbrautar á þessum köflum verður þá lokið.

Ljósanæturnefndinni færi ég bestu þakkir fyrir frábært starf.

Hafið öll bestu þakkir fyrir frábæra hátíð og velkomin á Ljósanótt að ári.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024