Þaulhugsað „klúður“
– Guðlaugur H. Sigurjónsson skrifar
Í innsendri grein í Morgunblaðinu 7. nóvember síðastliðinn gagnrýnir Virgill Scheving Einarsson nokkuð harðlega framkvæmdir við nýtt hringtorg við Stekk á Fitjum og kallar þær einu orði klúður. Greinarhöfundur fer yfir nauðsyn þess að tengja Ásbrú við verslunarsvæði á Fitjum fyrir gangandi vegfarendur og að tengja Hafnaveg við nýtt hringtorg.
Við á Umhverfissviði Reykjanesbæjar höfum átt í góðri samvinnu við Vegagerðina um að bæta umferðaröryggi á og við Reykjanesbraut. Árið 2009 voru tekin í notkun hringtorg og undirgöng við Grænásbraut og var þar horft til hárrar slysatíðni á þeim gatnamótum og þess að tryggja skólabörnum örugga leið undir Reykjanesbraut, enda sækja sum börn skóla í önnur hverfi. Eftir þær framkvæmdir hafa ekki orðið slys á mönnum á þessum gatnamótum en þau voru mjög tíð fyrir. Sama á við um umrædd gatnamót við Stekk, þar hafa alltof oft orðið alvarleg slys enda gatnamótin stórhættuleg.
Við erum afar þakklát Vegagerðinni fyrir að taka vel í bón okkar um framkvæmdir en þær eru samvinnuverkefni hennar og Reykjanesbæjar. Þetta er verkefni sem þoldi enga bið. Virgill gagnrýnir að ekki sé hugsað fyrir því að tengja Hafnaveginn við hringtorgið og þar með að loka þeim gatnamótum. Það er einmitt hugsunin að tengja Hafnaveg við hringtorgið og það verður gert um leið og breytt aðalskipulag lítur dagsins ljós á næsta ári og munum við sækja það hart að framkvæmdir hefjist í framhaldi. Við munum byrja á því að loka fyrir vinstri beygju á gatnamótunum við Hafnaveginn og er það fyrsta skrefið. Varðandi undirgöng þá hefði það líklega fyrst orðið klúður ef farið hefði verið í að setja undirgöng við hringtorgið því enginn hefði nýtt sér þau vegna hve langt frá göngulínu íbúa þau hefðu verið. Við munum með breyttu skipulagi gera ráð fyrir undirgöngum undir Reykjanesbraut sem munu nýtast íbúum Ásbrúar og höfum kynnt fulltrúum Vegagerðar þau áform og hefur verið vel tekið í þau.
Mikilvægt er að það komi fram að þær framkvæmdir sem nú standa yfir eru bráðabirgðaframkvæmdir því tvöföldun Reykjanesbrautar upp að hringtorgi við Rósaselstjörn, síðasta hringtorgið áður en komið er að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, er löngu orðin tímabær enda fara um þennan veg um 10.000 bílar á sólarhring og þeim mun fjölga umtalsvert ef spár um fjölgun ferðamanna ganga eftir. Reyndar gerum við ráð fyrir að það hringtorg sem unnið er við núna geti verið tvöfaldað og er hannað sem slíkt. Mikill fjöldi þessara ökumanna eru óvanir íslenskum aðstæðum og því mjög mikilvægt að vegakerfið, merkingar og lýsing séu góð. Þá munu, samkvæmt skipulagi, koma mislæg gatnamót norðan við Grænástorg.
Undirritaður vill hvetja Virgil, sem og aðra sem hafa áhuga á framkvæmdum í Reykjanesbæ, að kynna sér áform okkar á næstu árum. Einnig tökum við á Umhverfissviði fagnandi við ábendingum um það sem betur má fara. Það er mjög mikilvægt þegar framkvæmdarfé Vegagerðar er í lágmarki að rétt sé forgangsraðað og þá horft fyrst á „svartbletti“ í umferðinni, þ. e. þá staði sem tíð slys hafa verið og ég er þess fullviss að þarna hefur forgangurinn verið réttur.
Guðlaugur H. Sigurjónsson
Höfundur er sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanesbæjar