Þakkir frá knattspyrnudeild Keflavíkur
Stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur vill þakka öllum þeim sem studdu strákana okkar í sumar, og öllum þeim fyrirtækjum sem lagt hafa hönd á plóginn þökkum við ómetanlegan stuðning.
Við vorum ansi nálægt þeim stóra þetta árið og það er ekki í huga okkar að slá neitt af, nú þurfum við áfram sem áður að treysta á ykkur og með samhentu átaki er ekki spurning um að það styttist í stóra titilinn.
Áfram Keflavík
f.h. Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Þorsteinn Magnússon
Formaður