Takk fyrir okkur!
Við þökkum kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir það mikla traust sem okkur var sýnt í nýliðnum kosningum. Markmið okkar um fjóra þingmenn náðist, hópurinn er nú klár og fjölmörg verkefni sem bíða úrlausnar um allt kjördæmi.
Við viljum þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem lögðu hönd á plóginn í kosningabaráttunni. Ykkar framlag, baráttuhugur og stuðningur skipti sköpum.
Við hlökkum til að að vinna með ykkur á komandi kjörtímabili.
Hefjumst handa – nýtum tækifærin og sækjum fram!
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi,
Ragnheiður Elín, Unnur Brá, Ásmundur og Vilhjálmur