Tækifæri þegið
Fyrst ég er sá mikli tækifærissinni sem Arngrímur Guðmundsson sjálftitlaður búseti í Njarðvíkurhluta Reykjanesbæjar, lýsir í pistli sínum dagsettum og birtum þann 10. október hér á vef Víkurfrétta; - þá get ég ekki látið hjá líða að svara honum nokkrum orðum. Og að sjálfsögðu með því að nota tækifærið til að greina í stuttu máli frá sjónarmiðum Frjálslynda flokksins varðandi sameiningamál sveitafélaga.
Við í Frjálslynda flokknum gerum okkur fulla grein fyrir því að víða megi ná fram jákvæðum umbótum með því að sameina jafnt minn og jafnvel stærri sveitafélög. Enda höfum við ekki lagst gegn því. Ólafur F. Magnússon fulltrúi okkar í borgarstjórn Reykjavíkur hefur til að mynda lagt fram djarfar hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, hvatt til að slíkt yrði skoðað og fært góð rök fyrir máli sínu. Þetta hefur fallið í grýtta jörð, bæði hjá D lista og R lista moðsuðu Framsóknar og vinstri flokkanna. Varðandi sameiningu sveitafélaga höfum við Frjálslynd þó ítrekað varnaðarorð um að þess yrði gætt að tekjustofnar fylgdu frá ríki til sveitarfélaga, þannig að þau síðarnefndu gætu tekið að sér aukin verkefni. En við höfum líka lagt við hlustir í samræðum okkar við fólkið í landinu og orðið vör við að víða hafa íbúar orðið fyrir miklum vonbrigðum eftir sameiningar og vilja jafnvel að þær verði dregnar til baka með lýðræðislegum hætti. Þess vegna höfum við undirbúið frumvarp um að íbúar sveitarfélaga sem hafa sameinast á umliðnum 15 árum geti sjálfir tekið þá ákvörðun með atkvæðagreiðslu að endurreisa sveitarfélag sem hefur sameinast í stærra sveitarfélag. Þetta myndi auka lýðræðislegan rétt landsmanna til þess að ákveða sjálfir hvernig þeir vilja stjórna og haga þeirri stjórnsýslueiningu sem sveitarstjórn er. Nánar má lesa um þetta á heimasíðu Sigurjóns (www.sigurjon.is).
Það er því fásinna ein hjá nefndum Arngrími að halda því fram að Frjálslyndi flokkurinn sé stefnu- eða skoðanalaus í þessum málum. Hjá okkur er heldur engin málefnafátækt eins og Arngrímur heldur fram. Hins vegar er það svo þjóðin situr uppi með ólýðræðislega stjórnmálamenn eins og Árna Magnússon félagsmálaráðherra Framsóknarflokksins, sem ber ábyrgð á því að komið var í veg fyrir að fulltrúar Frjálsyndra og Vinstri grænna fengu að koma að því starfi sem Hjálmar Árnason leiddi og endaði með skelfingu um síðustu helgi. Svona vinnubrögð í máli sem varðar íbúa þessa lands hvar í flokki sem þeir standa, er náttúrulega makalaust virðingarleysi við lýðræðislega kjörið Alþingi og til að 16 prósent kjósenda sem þingflokkar Frjálslynda flokksins og Vinstri grænna starfa nú í umboði fyrir.
Það er nefnilega þannig að þegar menn fara af stað í þá vegferð að láta reyna með dýrum kosningum á það hvort fara eigi út í sameiningu sveitarfélaga, þá er eðlilegt að gera þá kröfu að menn viti nokkurn veginn og hagi störfum sínum með þeim hætti að þeir muni ná einhverjum árangri í að ná fram breytingum á ríkjandi ástandi. Þar á ég við að það náist fram sameiningar. Það gerðist ekki. Því kalla ég þessar kosningar klúður og lýsi ábyrgðinni alfarið á hendur Framsóknarflokks sem leiddi þetta starf með endemum, en gleymi þó heldur ekki aðkomu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að málinu.
Með kveðju frá Manhattan,
Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokksins
og 9. þingmaður Suðurkjördæmis.