Tækifæri í ferðaþjónustu
Ferðaþjónustuaðilar frá öllu landinu fjölmenna nú í lok janúar til höfuðborgarinnar í sjötta skiptið til þess að taka þátt í ferðasýningunni Mannamóti. Mikill kraftur einkennir ferðaþjónustuna eins og áður og eru fyrirtæki frá landshlutunum 270 talsins en þeim fylgir hópur hátt í 400 einstaklinga sem munu taka á móti gestum sínum frá höfuðborgarsvæðinu og kynna fyrir þeim þjónustu, spennandi áfangastaði og ýmsar nýjungar.
Mannamót hefur vaxið hratt frá því að vera lítil hugmynd um að búa til ákjósanlegan vettvang fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni til að kynna sig fyrir ferðaþjónustuaðilunum í Reykjavík, yfir í það að vera ein af lykilstoðum vaxtar og nýsköpunar í ferðaþjónustu. Á þessum vettvangi verða á hverju ári til gríðarlega mikil viðskipti, nýjar hugmyndir fæðast og samstarf verður til um ýmis verkefni. Tengsl styrkjast, auk þess að myndast á staðnum, enda er Mannamót frábær stökkpallur fyrir ný fyrirtæki inn í atvinnugreinina.
Sérstaða ferðaþjónustunnar á Íslandi felst í mannauðnum sem skapar eftirsótta þjónustu og vinnur sig í gegnum ýmsar áskoranir sem tengjast því að koma erlendum ferðamönnum á áfangastaðinn og heim aftur með frábæra upplifun í farteskinu. Undanfarin ár hefur ferðaþjónustan þurft að vinna hratt að því að þróa þjónustu sína og byggja upp innviði þar sem vöxtur í komum erlendra ferðamanna til Íslands hefur verið gríðarlega hraður. Mörg svæði hafa náð að byggja upp kröftuga ferðaþjónustu en í flestum landshlutum er enn mikil þörf á þróun og uppbyggingu, þar sem við höfum ekki náð að byggja upp heilsársferðaþjónustu um allt land.
Síðastliðin ár hefur hvert svæði sett ákveðin verkefni í forgang sem nauðsynlegt er að vinna til að byggja upp sjálfbæra ferðaþjónustu um allt landið en þessi verkefni tengjast samgöngum, uppbyggingu og skipulagi við nátttúruperlur, fjármögnun innviða og nýsköpunar, markaðssetningu og upplýsingagjöf svo eitthvað sé nefnt. Þessi verkefni verða aðeins unnin í góðu samstarfi ríkis og fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ef horft er til fjölda þátttakenda í Mannamóti þá er engan bilbug að finna á ferðaþjónustuaðilum og við getum áfram horft með bjartsýni til ferðaþjónustunnar sem einnar meginatvinnugreinar Íslendinga.
-
-
Aðsent 07.02.2019
-
Í skólunum okkar á að vera gott starfsumhverfi
Aðsent 01.02.2019 -
Forvörn gegn fíkniefnum - Fyrirlestur í Njarðvíkurskóla
Aðsent 29.01.2019
-
-
-
Af hverju er maðurinn þinn svona skrítinn?
Aðsent 25.01.2019 -
Aðsent 25.01.2019
-
Vindrósin frá Helguvík mun feykja eiturþyrnum yfir íbúa Reykjanesbæjar
Aðsent 24.01.2019
-
-
-
Íbúar Reykjanesbæjar mun ánægðari með sorphirðu nú
Fréttir 19.02.2019 -
Rýnt í nýtingu Reykjaneshallar og gerð nýs gervigrasvallar
Fréttir 19.02.2019 -
Samdráttur upp á 10% í sumaráætlun Keflavíkurflugvallar
Viðskipti 19.02.2019 -
Undirbúa fjölmargar framkvæmdir ársins
Fréttir 19.02.2019 -
Samþykkt með tilvitnuðum fyrirvara bæjarstjórnar
Fréttir 18.02.2019 -
Sex Suðurnesjamenn í æfingahópnum
Íþróttir 18.02.2019 -
Lifandi og krefjandi starf sem gefur mikið
Mannlíf 17.02.2019 -
Íbúafundur um ferðamál í Vogum
Mannlíf 19.02.2019 -
Grindavík hefur margt að bjóða
Mannlíf 17.02.2019 -
Fyrsti kossinn, Bláu augun þín og Harðsnúna Hanna
Mannlíf 16.02.2019 -
Þekking á aðstæðum flóttafólks og hælisleitenda dýpkuð
Fréttir 18.02.2019 -
Nýtt framhaldsskólanám í tölvuleikjagerð á Ásbrú
VefTV 16.02.2019
-
-
-
Nýtt framhaldsskólanám í tölvuleikjagerð á Ásbrú
VefTV 16.02.2019 -
VefTV 16.02.2019
-
Heilsugæsla dýranna og tölvuleikjanám í Suðurnesjamagasíni vikunnar
VefTV 14.02.2019 -
VefTV 09.02.2019
-
Hæfileikaríkur hópur setur upp Furðuverk
VefTV 09.02.2019 -
Furðuverk og auðlindagarður í Suðurnesjamagasíni
VefTV 07.02.2019 -
Nýtt lúxushótel og spa í Bláa Lóninu - sjón er sögu ríkari
VefTV 04.02.2019 -
The Retreat at Blue Lagoon og HS Orka í Suðurnesjamagasíni
VefTV 31.01.2019 -
Aðgerðir fyrir vaxtarsvæðið Suðurnes
VefTV 31.01.2019 -
Suðurnesjamaður ársins í Suðurnesjamagasíni
VefTV 25.01.2019 -
70-80% bæjarbúa á móti rekstri kísilvera í Helguvík
VefTV 23.01.2019 -
VefTV 20.01.2019
-