Sýndu hvað í þér býr!
Námskeið í félagsmálafræðslu í Reykjanesbæ 28. janúar.
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið í íþróttamiðstöð Njarðvíkur 28.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00.
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum. Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, þ.e. að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipan ræðu o.fl. Einnig verður kennt ýmislegt um fundi og fundahöld eins og fundareglur, boðun funda, fundaskipan, dagskrá funda, umræður, meðferð tillagna, kosningar o.fl.Námskeiðsgjald er 5000 krónur.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá UMFÍ í síma 5622929 eða í Sigurði í síma 861-3379 og á [email protected]