Svart og sykurlaust

Steinþór í bæjarstjórastólinn?
Ljóst er að stóll bæjarstjóra mun standa auður nú í vor þegar Ellert Eiríksson, núverandi bæjarstjóri lætur af störfum. Menn velta vöngum yfir því hver muni sækjast eftir að hreppa sætið. Jónína Sanders, formaður bæjarráðs hefur sagt opinberlega að hana langi ekki til að verða bæjarstjóri og sömu sögu er að segja um Skúla Þ. Skúlason oddivita bæjarstjórnar og starfsmann Samkaupa. En hvað með Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna, hótelstjóra og framkvæmdamann?
Maður með peningavit
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var Ellert fjarverandi og tók Steinþór þá sæti hans á fundinum. Það skyldi þó ekki vera að Steinþór færi fram í vor sem nýtt bæjarstjóraefni? Minnihlutinn gæti þá hætt að tala um fjáraustur meirihlutans þar sem Steinþór er þekktur fyrir að hafa gott peningavit! Fyrir utan þá hefur hann getið sér orð sem maður fólksins með því að halda utanum árlega hátíð, Ljósanótt og nú fyrir jólin býður hann utanbæjarfólki að gista frítt á hótelinu sínu til að efla verslun á svæðinu...
Fúll á móti
Meira um minnihlutann...hvað er þetta með að taka aldrei afstöðu og sitja hjá sí og æ? Hvernig væri að fulltrúar Samfylkingarinnar færu að segja sínar skoðanir, ekki bara vera fúl á móti, sama hvað sagt er og gert. Reykjaneshöllin hefur verið til umræðu nánast á hverjum einasta fundi bæjarstjórnar síðan hún komkst á teikniborðið og hið sama er að segja um fjárhagsstöðu bæjarins. Vita fulltrúar minnihlutans ekki að það kostar að einsetja skólana og koma upp góðri íþrótta og tómstundaaðstöðu?
Hvar eru kommarnir?
Böðvar Jónsson (D) kom aðeins inná þetta á síðasta fundi og minnti fulltrúa Samfylkingarinnar á að stuðningsmönnum þeirra, þeim fáu sem eftir væru, væri greiði gerður með því ef fulltrúarnir legðu fram stefnu sína í fjármálum bæjarins í stað þess að vera bara á móti. Það væri engin stefna!
Flóttamannabúðir meirihlutans
Kristmundur Ásmundsson (S) firrtist við og sagði að minnihlutinn gerði lítið annað en að leggja fram snilldarlegar tillögur en þær væru stöðugt felldar af meirihlutanum, 7-4. Jóhann Geirdal (S) kollegi Kristmundar, lagði einnig orð í belg og benti á að fjárhagsáætlun fyrir árið 2002 væri ekki enn tilbúin enda engin furða þar sem gerð hennar væri örugglega mjög erfið og verkskipulag meirihlutans sennilega verulega slakt. „Staða bæjarsjóðs er slæm enda er verulegur flótti kominn í liðið“, sagði Jóhann og vísaði þar með til þess að Ellert, Jónína og Skúli Þ. væru öll að hætta í vor.
Útsvarið hækkar ekki
Fulltrúar meirihlutans fullyrtu að fjárhagsáætlunin yrði tilbúin á lögformlegum tíma en frestur til að leggja hana fram er fram í janúar. Jónína Sanders sgaði að útsvar yrði áfram 12,7% eins og áður en þjónustugjald hækkaði um 5%. „Sú hækkun er í lágmarki miðað við önnur sveitarfélög af svipaðri stærðargráðu en verðlag hefur hækkað um 8% á árinu. Auk þess hafa laungreiðslur til starfsmanna bæjarins hækkað verulega á árinu. Þessu verðum við að mæta með einhverjum ráðum og það munum við gera“, sagði Jónína.
Tónlistarnám ódýrara en reykingar
Kristmundur og Kjartan Már (B) áttust aðeins við á fundinum og þá var aðalumræðuefnið æfingagjöld til íþróttafélaga og skólagjöld til tónlistarskólans. Kristmundur og félögum hans í Samfylkingunni, þykja gjöldin allt of há þó svo að íbúar Reykanesbæjar greiði aðeins fimmtung þess sem kostar að vera með barn í tónlistarnámi. Kjartan benti þá á að það kostaði mun minna, á ársgrundvelli, að vera með tvö börn í tónlistarnámi, heldur en að reykja pakka á dag. Jónína Sanders (D) benti einnig á að stjórnir félaganna hefðu vald til að ákvarða hver æfingagjöldin væru og þeim væri stillt í hóf þar sem fáir iðkendur fengjust ef þau væru of há.