Bygg
Bygg

Aðsent

Suðurnesjamenn geta lifað af án ríkisstjórnarinnar
Laugardagur 19. mars 2011 kl. 13:00

Suðurnesjamenn geta lifað af án ríkisstjórnarinnar

Þau auka ekki á bjartsýni Suðurnesjamanna ummæli fjármáláðherra í Víkurfréttum 16. mars sl. en þar kemur fram í máli ráðherrans að Suðurnesjamenn geti lifað af án álvers í Helguvík. Á síðasta ári má gera ráð fyrir því að Vinumálastofnun hafi greitt 1500 atvinnulausum íbúum Suðurnesja þrjúþúsund milljónir króna í atvinnuleysisbætur. Ég geri ráð fyrir því að fæstir þeirra telji að framtíðin sé björt, rætist draumur fjármálaráðherrans um Suðurnes án álvers í Helguvík.


Það góða í orðum ráðherrans er að við Suðurnesjamenn eigum gott sumar í vændum í ferðaþjónustunni. Ráðherrann beitti sér reyndar fyrir því að setja skatt á starfsemi Keflavíkurflugvallar og flugstöðvarinnar sem átti að skila um milljarði í ríkissjóð. Við munum eftir umræðunni um hækkun á vörum Fríhafnarinnar og frægri ræðu um kerlingar vegna þess máls. Stjórnendur tóku þá ákvörðun að í stað skatta á vöru og þjónustu flugvallarins svo samkeppnisaðstaða hans skekktist ekki við samkeppnislöndin í Evrópu var ákveðið að skera niður í viðhaldi í flugstöðinni og flugvellinum. Þær 600 milljónir sem hefðu farið í viðhaldsverkefni á þessu ári eru því notaðar til að auka skatttekjur fjármálaráðherrans á því landsvæði þar sem atvinnuleysi er mest. 600 milljónir eru 240 ársstörf, ef helmingur fer í efniskaup væru störfin nú 120, eða 30 fleiri en störfin í Kísilmálmverksmiðjunni verða.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Ef villtustu draumar ráðherrans um að þau 2000 störf og afleidd störf álveri í Helguvík verði ekki að veruleika og þau 120 störf sem hann hefur tekið af okkur með aukaskatti á stafsemi flugstöðvarinnar er hann búinn að eyða út þeim 2100 ársverkum eða 600 framtíðarstörfum sem forsætisráðherrann var að guma sér af í umræðum á Alþingi í vikunni. En það hefur vakið athygli að forsætisráðherrann minntist þar hverrgi á álver í Helguvík sem mun skapa 10.000 árstörf um leið og verkefnið fer á fulla ferð.

Suðurnesjamenn og þjóðin öll þarf að losna við slíka ráðmenn og ríkisstjórn sem fyrst til að lifa af.


Ásmundur Friðriksson
bæjarstjóri í Garði.