Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Suðurnesjamenn á réttri leið
Þriðjudagur 14. maí 2013 kl. 13:25

Suðurnesjamenn á réttri leið

Í slysaskýrslu Umferðarstofu sem kynnt var nýlega kemur fram að alvarlegum slysum og banaslysum fækkaði hér á landi á síðasta ári.  Sé fjöldi banaslysa síðustu fimm ára borinn saman við næstum fimm ár þar á undan kemur í ljós að fækkunin er 48%.  Á síðasta ári létust 9 manns, en á fimm ára tímabili létu 58 manns lífið í umferðinni.  Til samanburðar létust 111 fimm árin þar á undan eða frá 2003 til 2007.  Varðandi banaslysin er það ánægjuleg staðreynd að enginn ölvaður ökumaður kom við sögu í banaslysum ársins.  Er það að í fyrsta sinn í marga áratugi, að mati þeirra sem best þekkja til.

Mjög mikil fækkun varð á slysum þar sem ungir ökumenn komu við sögu, sérstaklega þegar fjöldi þeirra er borinn saman við fjölda slysa árið 2007.  Hægt er að skýra það með markvissum aðgerðum, sem felast í fræðslu í framhaldsskólum, eflingu ökukennslu og því að þeir ungu ökumenn sem brjóta ítrekað af sér þurfa að sækja sérstök námskeið og gangast aftur undir bæði skriflegt og verklegt ökupróf.

Svo að við höldum okkur áfram við góðar fréttir þá hafa aldrei eins fá börn slasast í umferðinni  eins og árið 2012, sé að minnsta kosti miðað  við þann gagnagrunn  sem stuðst er við en hann er frá árinu 1986. Ef horft er til heildarfjölda slasaðra og látinna barna undanfarin 10 ár þá kemur í ljós að meðaltalið er 120. Árið 2012 var heildarfjöldi  88, en tekið skal fram að ekkert barn lét lífið, en yngsta fórnarlamb umferðarslyss var 21. árs ökumaður.

Eigi að greina skýringar á fækkun alvarlegustu slysanna á árinu  má meðal annars geta aðgerða sveitarfélaga, sem hafa í síauknum mæli lækkað hámarkshraða í íbúðahverfum og við skóla og leikskóla í 30 km/klst.  Sú aðgerð ein hefur án efa leitt til mikillar fækkunar alvarlegra slysa.  Þá má ekki gleyma þeirri staðreynd að bílar verða sífellt öruggari frá hendi framleiðenda og að ábyrgðartilfinning ökumanna virðist hafa farið vaxandi.  

Jákvæð þróun á sér stað varðandi umferðarslys á Suðurnesjum sé gerður samanburður á árunum 2011 og 2012.  Fyrra árið urðu 7 alvarleg slys og jafn mörg á síðasta ári.  Fyrra árið slösuðust 8 alvarlega, en voru jafn margir og slysatilvikin í fyrra.  Hins vegar er mikil fækkun á slysum með litlum meiðslum.  Þau voru 68 og í þeim slösuðust 105 fyrra árið, en í 41 slysi og  slösuðust 63 árið 2012.
3 slösuðust alvarlega í Reykjanesbæ í fyrra, 1 í Sandgerði og 3 utanbæjar á Suðurnesjum.  Ekkert slys með meiðslum varð í Vogum á árinu.

Við skoðun á yfirliti yfir slys með meiðslum eftir vegaköflum eru nokkrir staðir á Suðurnesjum sérlega slæmir.  Má þar nefna Reykjanesbraut, brú við Grindavíkurveg og Vatnsleysustrandarveg, kafla á Grindavíkurvegi, Reykjanesbraut á mörkum Grindavíkurvegar og Njarðvíkurvegar og Garðskagaveg frá Garði að Miðnesheiðarvegi.  Hafa þarf í huga að þessi greining miðast við síðustu fimm ár, frá 2008 til 2012.  Fyrir nokkrum árum slösuðust tiltölulega mjög margir Suðurnesjamenn í umferðinni.  En staða þeirra hefur batnað verulega og vekur vonir um að mál sé að snúast í rétta átt.

Sigurður Helgason
(Höfundur er sérfræðingur á Umferðarstofu)

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024