Bygg
Bygg

Aðsent

Suðurnesjamenn – styðjum Björku
Fimmtudagur 12. apríl 2007 kl. 11:09

Suðurnesjamenn – styðjum Björku

Í kjölfar skoðunarkönnunar Stöðvar 2 um fylgi stjórnmálaflokkanna í Suðurkjördæmi er mikilvægt að hugleiða hver staðan gæti orðið eftir kosningar. Þrátt fyrir að vissulega sé ýmislegt við slíkar kannanir að athuga, þær misvísandi, úrtakið lítið og skekkjumörk mikil, þá er engu að síður mikilvægt að taka spágildi þeirra alvarlega. Miðað við niðurstöðu könnunar sem Stöð 2 birti í sjónvarpinu á miðvikudagskvöld er ljóst að Framsóknarmenn eru að slást við að koma 2. manni sínum að sem er Bjarni Harðarson frá Selfossi. Samfylkingin er nálægt því að missa sinn þriðja mann á lista og munu vinna að því að halda honum inni en það er Róbert Marshall frá Vestmannaeyjum og Vinstri grænir eru í sömu stöðu og Samfylkingin gagnvart 2. manni á sínum lista, Ölmu Lísu Jóhannsdóttur frá Selfossi.

Í þessum sama slag verður Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sem starfað hefur ötullega að málefnum sveitarfélagsins í fjölmörg ár og verið bæjarfulltrúi í Keflavík og síðar í Reykjanesbæ frá 1990. Björk er vel heima í öllum málum er snerta sveitarfélögin í landinu enda verið stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga um árabil.

Það er mjög mikilvægt fyrir sveitarfélögin að hafa góða tengingu við alþingi og því hafa sveitarstjórnarmenn í auknum mæli tekið þátt í landsmálapólitíkinni á síðustu árum. Á sama hátt er mikilvægt fyrir sveitarstjórnirnar á Suðurnesjum, ekki aðeins í Reykjanesbæ, að nýta það tækifæri sem við nú höfum og koma fulltrúa okkar á þing. Það verður aðeins gert með því að styðja Björku Guðjónsdóttur í komandi kosningum og kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Látum þetta tækifæri ekki renna okkur úr greipum og stöndum öll saman í baráttunni sem framundan er.

Böðvar Jónsson

Höfundur er bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
og formaður bæjarráðs

 

Mynd: Björk Guðjónsdóttir

Bílakjarninn
Bílakjarninn