Landsbankinn - 12. maí
Landsbankinn - 12. maí

Aðsent

Suðurnesjabær á kortið með menningu og ferðaþjónustu í forgrunni
Föstudagur 8. maí 2026 kl. 14:15

Suðurnesjabær á kortið með menningu og ferðaþjónustu í forgrunni

Suðurnesjabær býr yfir einstökum tækifærum á sviði ferða- og menningarmála. Með alþjóðaflugvöll í næsta nágrenni liggur bein leið til heimsins - en til að nýta það tækifæri þurfum við að marka okkur skýra stefnu og kynna sveitarfélagið markvisst sem áhugaverðan og lifandi áfangastað.

Við viljum byggja upp sterka ímynd sem sameinar sögu, náttúru og öflugt mannlíf. Það krefst bæði frumkvæðis og samvinnu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Við stefnum að því að ráða markaðs- og menningarfulltrúa sem hefur það hlutverk að efla kynningu á sveitarfélaginu, samræma markaðsstarf og styðja við menningarverkefni. Með markvissri nálgun getum við aukið sýnileika Suðurnesjabæjar og laðað að bæði gesti og ný tækifæri.

Menning verður áfram lykilþáttur í þessari uppbyggingu. Við viljum styðja við frumkvæði bæjarbúa á sviði lista og menningar og skapa umhvervi þar sem sköpun fær að blómstra. Með því styrkjum við ekki aðeins menningarlífið heldur líka samfélagsandann.

Saga og sérstaða svæðisins eru dýrmæt auðlind sem við getum nýtt mun betur. Við ætlum að setja upp söguskilti um sögu og minjar svæðisins og bæta almenna upplýsingagjöf fyrir bæði íbúa og ferðamenn. Með skýrari og aðgengilegri upplýsingum gerum við upplifun gesta ríkari og styrkjum tengsl íbúa við eigin sögu.

Einnig viljum við fara í enduruppbyggingu á útsýnispalli við höfnina og skapa þar notalegt rými með góðri aðstöðu til setu. Slík svæði auka bæði lífsgæði íbúa og aðdráttarafl fyrir gesti.

Samstarf er lykillinn að árangri. Við munum leggja áherslu á aukið samstarf við ferðaþjónustuaðila og heimafólk, því uppbygging verður sterkust þegar hún er unnin í sameiningu.

Að lokum viljum við efla samfélagslega viðburði sem draga fólk saman. Áramótabrenna er gott dæmi um hefð sem getur orðið fastur liður í bæjarlífinu og styrkt samkennd íbúa.

Suðurnesjabær hefur allt til alls til að verða enn sterkari á sviði ferða- og menningarmála. Nú er tíminn til að nýta þau tækifæri.

Setjum X við B þann 16. maí.

Ewa Krysztopa
Frambjóðandi í 5. Sæti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ

Hallur Jónas Gunnarsson
Frambjóðandi í 15. Sæti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar