Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Styrkir til uppbygginar ferðamannastaða
Þriðjudagur 12. júní 2012 kl. 10:10

Styrkir til uppbygginar ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur er til og með 10 september 2012 og umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Hlutverk sjóðsins:

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er vistaður hjá Ferðamálastofu. Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Áherslur og ábendingar til umsækjenda:


Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða.

Framkvæmdasjóðsins og Ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis ofl.
Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga koma m.a. fram “Menningarstefnu í mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“ og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum“ (sjá nánar á umsóknarsíðu).

Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.

Allar umsóknir skulu innihalda:

a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti.
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag,
fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunarvinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að fylgja
skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila

Hverjir geta sótt um:
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

Hvar ber að sækja um:
Umsóknareyðublöð er að finna á hér á sérstakri umsóknasíðu. Þar eru jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja um.