Stöndum saman og segjum nei við unglingadrykkju á Ljósanótt
Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð í Reykjanesbæ verður haldin í tólfta sinn frá 1. til 4. september. Reykjanesbær hefur ávallt haft það að leiðarljósi að Ljósanótt sé fjölskylduhátíð og við skipulagningu hennar er lögð áhersla á að dagskráratriði höfði til fólks á öllum aldri. Hátíðarhöldin hafa alla jafna farið vel fram og ánægjulegt að sjá að fjölskyldur úr öllum áttum sameinast með okkur í Reykjanesbæ á þessum tímamótum.
Í tengslum við hátíðina verður rekið athvarf í öryggismiðstöð að Hafnargötu 8. Að athvarfinu standa Fjölskyldu- og félagsþjónustan, Útideildin, Lögreglan og Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ. Athvarfið verður starfrækt föstudags- og laugardagskvöld eftir að skipulagðri dagskrá lýkur. Börn og ungmenni sem eru ein á ferli og/eða eru undir áhrifum áfengis eða vímuefna verða færð í athvarfið. Mikilvægt er að foreldrar og unglingar standi saman og taki ábyrga afstöðu gagnvart unglingadrykkju hvort sem um er að ræða á Ljósanótt eða ekki. Lögreglan mun vera með öflugt eftirlit gagnvart unglingadrykkju á Ljósanótt þar sem ekki verður samþykkt að unglingar séu með áfengi um hönd. Þessar aðgerðir eru fyrst og fremst til verndar fyrir börnin okkar en jafnframt til stuðnings foreldrum í uppeldishlutverki sínu.
Mikilvægt er að foreldrar standa saman um að virða útivistartímann því það er sannreynt að ákveðin hætta fylgir því að börn séu eftirlitslaus úti eftir að rökkva tekur. Þann 1. september breytist útivistartími barna og skv. barnaverndarlögum skulu þá börn 12 ára og yngri ekki vera lengur úti en til kl. 20.00 nema í fylgd með fullorðnum og börn á aldrinum 13-16 ára skuli ekki vera ein á almannafæri eftir klukkan 22.00.
Foreldrar og unglingar sýnum ábyrgð í verki og segjum Nei við unglingadrykkju og eigum góðar fjölskyldustundir á Ljósanótt.
Hátíðarkveðjur
María Gunnarsdóttir
Forstöðumaður barnaverndar Reykjanesbæjar