Stöndum saman: -Suðurnesin í prófkjöri

Þann 20. janúar n.k. fer fram prófkjör á vegum Framsóknar í Suðurkjördæmi. Þetta er þriðja prófkjörið í kjördæmi okkar. Óhætt er að segja að gengi Suðurnesja hafi ekki verið allt of gott í þeim tveimur prófkjörum sem af eru. Fyrir vikið eigum við ekkert öruggt þingsæti. Sé haft í huga að Suðurnesin eru um 45% af kjördæminu þá er þessi staða óviðunandi.
Ég ákvað að taka áskorun 1976 Suðurnesjamnna um að gefa kost á mér í fyrsta sæti á lista Framsóknar. Þrír Sunnlendingar hafa þegar gefið kost á sér í annað sætið. Ég hef verið þingmðaur ykkar í bráðum 12 ár. Ég vil láta verkin tala en umfram allt er mikilvægt að Suðurnesin eigi þingmann búsettan á svæðinu. Til þess þarf ég á stuðningi ykkar að halda í prófkjörinu þann 20. janúar. Suðurnesjamenn geta sýnt samstöðu þegar mikið liggur við. Sýnum hana í verki og tryggjum Suðurnesjamann í fyrsta sætið þann 20. janúar n.k.
Með kærri kveðju
Hjálmar Árnason.