Bygg
Bygg

Aðsent

Stofnun lýðveldi á Suðurnesjum í sept. 2010
Þriðjudagur 7. september 2010 kl. 13:41

Stofnun lýðveldi á Suðurnesjum í sept. 2010

Ágætu samborgarar!
Ég nenni ekki lengur að bíða eftir því að stóri bróðir á Alþingi vinni sína vinnu og skilji stöðuna sem við erum í hér á Suðurnesjum. Atvinnumálin í rúst og svo gott sem allt sem við höfum unnið í að byggja upp og reyna að koma á lappirnar er slegið niður jafnharðan aftur.
Hættum að tala við stjórnvöld. Hættum að bíða og bíða. Setjum strax upp hlið og girðingu þvert yfir á Reykjanesskagann og stofnum okkar eigið örlýðveldi. Landamæragæsla á staðinn og síðan höfum við hendina allt til alls ef við bara tökum höndum saman um að nýta það í okkar þágu. Raforkuframleiðslu, heitt vatn, fiskimið og hafnir og flugvöllinn. Okkur vantar atvinnu STRAX og aðgerðir STRAX.


Gefum skít í þessa stjórnmálamenn sem ekki skilja alvöru málsins hjá okkur og stöndum nú saman og krefjumst aðgerða ekki síðar en NÚNA. Við neitum að bíða lengur eftir aðgerðum og afgreiðslu mála okkur tengdum. Allir taki nú einu sinni höndum saman hvar í pólitík sem þeir eru í dag.
Ég segi oft: Nú þarf að fara af kjaftastiginu yfir á framvæmdastigið og gerum það STRAX.


baráttukveðja
Elías Jóhannsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn