Bygg
Bygg

Aðsent

Stofnun bæjarmálafélags Frjálslynda flokksins í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 10. febrúar 2005 kl. 14:07

Stofnun bæjarmálafélags Frjálslynda flokksins í Reykjanesbæ

Undirbúningsnefnd vegna fyrirhugaðrar stofnunar á bæjarmálafélagi í Reykjanesbæ undir merkjum Frjálslynda flokksins hefur ákveðið að boða til stofnfundar þann 17. febrúar n.k. kl. 20.30 í sal Verkalýðs-og sjómannafélags Keflavíkur (VSFK) Hafnargötu 90, Reykjanesbæ. Jafnframt var ákveðið að eftir stofnun félagsins yrði kosið í stjórn skv. reglum þess. Nefndin hefur miklar væntingar um breiðan stuðning bæjarbúa og vonar að sem flestir muni mæta á fundinn. Boðið verður upp á kaffi og tertur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Ljósmynd/Mats Wibe Lund.

Bílakjarninn
Bílakjarninn