HSS
HSS

Aðsent

Föstudagur 7. nóvember 2003 kl. 16:27

Stjórnunarkostnaður um 23.000 kr. á íbúa

Vegna fréttar í Fréttablaðinu í dag, undir fyrirsögninni "Kostnaður hæstur í Reykjanesbæ", er rétt að fram komi að inn í útreikningum ársins 2002 er framlag vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga 415 milljónum króna hærri en á venjulegu ári í rekstri sveitarfélagsins.  Er þetta gert einu sinni að lokinni tryggingarfræðilegri úttekt og gjaldfært á því ári, en kemur hvorki fram í reikningum árin á undan eða á eftir.  Samanburður milli sveitarfélaga í stjórnunarkostnaði er því óraunhæfur nema tillit sé tekið til þessa þáttar. Sérstaklega er gert grein fyrir þessu í skýringum með ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir árið 2002.
Raunverulegur stjórnunarkostnaður er því tæplega 23.000.- kr. á íbúa vegna ársins 2002 en ekki tæp 61.000.- eins og frá var greint í Fréttablaðinu.

Tilkynning frá Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn