HSS
HSS

Aðsent

Stjórn Samtaka Verslunar og Þjónustu á villigötum
Þriðjudagur 30. nóvember 2004 kl. 16:38

Stjórn Samtaka Verslunar og Þjónustu á villigötum

Af og til undanfarin ár hefur hagsmunagæsluaðili heildsala og annarra kaupmanna þ.e. Samtök Verslunar og Þjónustu (SVÞ) vakið athygli á því að stunduð sé ríkisverslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE hf) hér á Miðnesheiðinni en FLE hf er hlutfélag í eigu ríkisins sem sér um rekstur flugstöðvarinnar skv. lögum frá Alþingi. Málflutningur SVÞ hefur hreint út sagt verið með eindæmum á villigötum, fullur af staðreyndarvillum og byggður á sérhagsmunum fárra á kostnað megin þorra almennings.    

Komuverslun er mikilvæg þjónusta fyrir flugfarþega
Stjórn SVÞ vill í nýjasta útspili sínu leggja niður komuverslun Fríhafnarinnar í Leifsstöð. Augljóst er að verði það gert mun sú verslun og þjónusta ásamt þeim störfum sem þar eru flytjast úr landi til annarra flugstöðva vítt og breidd um heiminn. Meginuppistaða veltunnar í komuverslun er sala á áfengi og tóbaki sem farþegar á leið til Íslands nýta sér og versla nánast undantekningalaust vegna þess að ekki eru lagðir skattar og tollar á þessar vörur í fríhöfninni. Ef komuverslun væri lögð niður er ljóst að farþegar myndu einfaldlega kaup þessar vörur í öðrum fríhöfnum.
• Hvaða áhrif ætli það myndi hafa á atvinnustigið á Suðurnesjum ?
• Hvaða áhrif ætli það myndi hafa á birgja Fríhafnarinnar, ekki selja þeir vörur til Kastrup í Kaupmannahöfn ?
Fríhöfnin er því í beinni samkeppni við fríhafnir á öðrum flugvöllum en ekki í samkeppni við verslanir innanlands. Komuverslun fríhafnarinnar er til þæginda fyrir ferðamenn en auk þess má færa rök fyrir því að hún spari flugfélögum eldsneyti vegna þess að farþegar þurfa ekki að flytja varninginn með sér í flugvélunum og þar með þyngja þær verulega.

Þjónustugjöld flugrekstraraðila eru 0 kr.
FLE hf  er félag sem tók yfir rekstur Flugstöðvarinnar og Fríhafnarinnar árið 2000. Óhætt er að fullyrða að vel hafi gengið hjá hinu unga hlutafélagi og löngu tímabærar framkvæmdir við Flugstöðina eru nú komnar á fullt skrið. Samkvæmt áætlun FLE hf munu framkvæmdir í ár og á næsta ári kosta 2,5 milljarð króna við Flugstöðina. Megin þorri þessara framkvæmda eru fjármagnaðar með verslunarrekstri FLE hf. Ekki króna kemur úr ríkissjóði, þvert á móti mun FLE hf greiða 375 milljónir í arð til ríkisins vegna yfirstandandi rekstrarárs. Samkvæmt áætlun FLE munu þessar framkvæmdir stórauka verslun og þjónustu við flugfarþega og flugrekendur með tilsvarandi fjölgun starfa hér á Suðurnesjum. Það er alveg ljóst að ef ekki kæmu til tekjur af verslunarrekstri FLE hf myndi annaðhvort þurfa að leggja ný þjónustugjöld á flugfarþega flugfélaganna eða biðja um fjármagn úr ríkissjóði til að hægt væri að fjárfesta í uppbyggingu Flugstöðvarinnar. Ég hef ekki trú á að unnt væri að ná í þessa peninga í ríkissjóði og ég er ansi hræddur um að flugrekstraraðilar væru ekki kátir með ný þjónustugjöld sem myndi leiða til hækkunar flugfarmiða til og frá landinu. Ljóst er að ný þjónustugjöld á flugfarþega myndu draga úr samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga og hafa alvarlega neikvæð áhrif á þróun ferðamannaþjónustu hér í landi sem útflutningsatvinnugrein. Ég er ekki viss um að það myndi þjóna hagsmunum skjólstæðinga SVÞ. Flugstöð Leifs Eiríkssonar sker sig verulega frá öðrum alþjóðlegum flugstöðvum sem reknar eru vítt og breitt um heiminn. T.d. eru 80% af tekjum Terminal 4 (Flugstöð 4) við JFK flugvöllinn í Bandaríkjunum þjónustugjöld sem flugfélög greiða fyrir að fá að ferja flugfarþega sína í gegnum flugstöðina. Til samanburðar eru tekjur FLE hf af slíkum gjöldum 0 kr. Einu tekjurnar sem FLE hf hefur af flugrekstraraðilum eru 6 dollara innritunargjald sem greiðir kostnað við rekstur innritunarborða og notkun á þeim hugbúnaði sem notaður er við innritun farþega. Tekjur FLE hf vegna innritunargjalds eru rétt rúm 6% af heildartekjum FLE hf til samanburðar við tekjur Terminal 4. 

Ég þori að fullyrða að sú uppbygging sem nú á sér stað í flugstöðinni væri ekki með sama krafti ef ekki hefði verið stigið það skref sem var stigið árið 2000 og FLE hf stofnað. Afleiðingarnar eru fleiri störf fyrir Suðurnesjafólk í gegnum auknar tekjur Flugstöðvarinnar og aukinni þjónustu sem krefst æ fleira sérhæfðs starfsfólks.

Fleiri rekstraraðilar á leið inn í flugstöðina
FLE hf stendur nú um þessar mundir fyrir umfangsmiklu forvali vegna verslunarreksturs á fríhafnarsvæðinu. Yfir 50 ólíkir aðilar með ýmiskonar rekstur og þjónustu sóttu um að komast inn í flugstöðina með sinn rekstur. Þetta er afar jákvæð þróun og má vænta milla breytinga í flugstöðinni á næstu árum.

Hagsmunir Suðurnesja
Hagsmunir okkar á Suðurnesjum eru fyrst og fremst þeir að þær tekjur og sá virðisauki sem verður til með verslunarrekstri í Flugstöðinni haldist á svæðinu og fari í frekari uppbyggingu stöðvarinnar svo unnt sé að veita sífellt fjölgandi flugfarþegum betri og ódýrari þjónustu. Fyrirkomulag rekstrarins er útfærsluatriði, aðalatriðið er að finna bestu leiðina að settu marki sem er að sjálfsögðu vöxtur og velferð ferðaþjónustu í landinu en Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Keflavíkurflugvöllur eru í raun mikilvægasti einstaki þáttur þeirrar þróunar sem vonandi verður á sviði ferðaþjónustunnar.

Eysteinn Jónsson
aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra og stjórnarmaður í FLE hf.

Bílakjarninn
Bílakjarninn