Bygg
Bygg

Aðsent

Starfsemi Virkjunar hafin eftir sumarfrí
Mánudagur 13. september 2010 kl. 14:13

Starfsemi Virkjunar hafin eftir sumarfrí


Starfið hjá Virkjun er hafið að nýju eftir sumarfrí. Þar verður fjölbreytt starfsemi í boði Virkjunar og samstarfsaðila. Ýmsir klúbbar verða með starfsemi eins og t.d í billiard, ljósmyndun, skapandi skrif, handavinnu og fl. Boðið verður uppá ensku-, íslensku- og tölvur fyrir alla þar sem þáttakendur geta komið og lært á eigin forsendum.

Í starfi Virkjunar er miðað við að allir séu velkomnir jafnt byrjendur sem lengra komnir. Vinnumálastofnun er með kynningarfundi alla fimmtudaga klukkan 10. Einnig eru ýmsir aðilar með námskeið sín í Virkjun fyrir atvinnuleitendur, t.d. er MSS með leiðsögn í árangursríkari starfsleit. Þeir sem eru skráðir atvinnulausir geta fengið frítt aðgangskort í sund afhent í Virkjun. Ýmsir fyrirlestrar eru á döfunni sem auglýstir verða síðar.

Vöfflukaffi er í Virkjun á þriðjudögum kl. 14:30 og á fimmtudögum kl. 10:30.
Í tengslum við það stendur Virkjun mannauðs á Reykjanesi  fyrir áskorendaleik, þar sem fyrirtæki tekur að sér að styrkja Virkjun með kaffi og vöfflur í einn mánuð og er þá útnefnt „Postuli mánaðarins í Virkjun“ Postularnir styrkja starfsemi Virkjunar með því að leggja til kaffi í einn mánuð og bjóða upp á vöfflur tvisvar í viku þann mánuð sem fyrirtækið sér um kaffið.

Samkaup hf. reið á vaðið og styrkti Virkjun um kaffi og vöfflur í marsmánuði, ÍAV-þjónustu var postuli í apríl, Atafl postuli í maí og Vocal í júní og síðan Hótel Keflavík í ágúst. Hótel Keflavík skorar á Kaffitár að verða postuli Virkjunar í september.

Verkefnin framundan hjá Virkjun eru bæði margþætt og mörg og nú ríður á að við tökum höndum saman svo Virkjun megi verða sá öflugi vettvangur fyrir atvinnuleitendur sem svo sannarlega er þörf á. Hlutverk Virkjunar er að verða ein allsherjar virknimiðstöð, auka á virkni atvinnuleitenda og stuðla að því að þeir geti annaðhvort farið af stað sjálfir með atvinnusköpun eða komist í starf þegar tækifæri opnast. Gott er að fylgjast með starfsemi Virkjunar á virkjun.net og einnig erum við á Facebook; Virkjun mannauðs á Reykjanesi . Opið er alla daga vikunnar frá 09:00 til 16:00 og allir ávallt velkomnir. Virkjun er staðsett á Flugvallarbraut 740, Ásbrú og símanúmerið er 426 5388.

Gunnar H. Gunnarsson,
verkefnisstjóri virkjunar

Bílakjarninn
Bílakjarninn