Starf eða áhugamál?
Birna Ósk Óskarsdóttir,
er í 11. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ.
Ég velti stundum fyrir mér hvort starf mitt sé eitt af áhugamálum mínum. Í mörg ár hef ég starfað með börnum, ég hef unnið í frístundaskóla, félagsmiðstöð og í leik- og grunnskóla bæði sem stuðningur og umsjónarkennari. Ég elska að vinna með börnum og það má segja að velferð þeirra sé eitt af mínum áhugamálum.
Hlustum á unga fólkið
Það er mitt hjartans mál að öllum börnum líði vel og að hver einstaklingur geti verið besta útgáfan af sjálfum sér. Hvernig getum við stutt við börn til að það geti raungerst? Jú, með því að styrkja þau í að vera þau sjálf og mæta þeim eins og þau eru! Hættum að setja alla í einhverja kassa, horfum út fyrir boxið og leitum fjölbreyttra leiða til þess að leyfa öllum blómstra. Við erum ekki bara með eina tegund af blómum í blómabeðum. Í blómabeði eru mörg ólík blóm sem þurfa ólíkan áburð og umönnun. Þannig erum við mannfólkið líka, það sem virkar fyrir einn virkar ekkert endilega fyrir annan. Í skóla þar sem fjölbreytileikinn er mikill þarf starfsfólk einnig að vera fjölbreytt svo hægt sé að koma til móts við þarfir allra. Við í Framsókn viljum styrkja stoðþjónustu innan skólanna með fjölbreyttum hópi fagfólks og viljum að þar starfi einnig félagsráðgjafi, skólaráðgjafi eða annar trúnaðarmaður nemenda innan skólanna sem nemendur hafi greiðan aðgang að. Við hlustum á unga fólkið okkar og þetta er eitt af því sem brennur á þeim.
Fjárfestum í fólki
Þegar ég hóf störf hjá Reykjanesbæ var ég ekki byrjuð í háskólanámi en ég fékk mikla hvatningu og þann stuðning sem ég þurfti frá mínum stjórnendum til þess að mennta mig og gat gert það samhliða vinnu. Þeir nemendur sem ég var að kenna á þeim tíma voru líka heppnir að fá mjög fjölbreyttar kennsluaðferðir því ég nýtti mér þau forréttindi að geta fléttað námið saman við vinnuna. Það eru forréttindi að fá þennan stuðning og allir græða á því. Við í Framsókn ætlum að tryggja að þessi stuðningur haldi áfram og erum nú þegar farin að leita leiða til að skapa fjölbreytt tækifæri til menntunar í samvinnu við háskólana. Við trúum því að ef við fjárfestum í að byggja upp enn öflugri hóp fagfólks í leik- og grunnskólum þá verðum við betri í að hlúa að börnunum okkar þannig að þau geti blómstrað hvert á sinn hátt. Besta fjárfestingin er fjárfesting í fólki, hún skilar sér til framtíðar.