HSS
HSS

Aðsent

Staða heilbrigðis á Suðurnesjum
Fimmtudagur 19. október 2017 kl. 11:21

Staða heilbrigðis á Suðurnesjum

Ég hef sett spurningarmerki við heilbrigðisstöðu Suðurnesjamanna í lengri tíma.
 
Ég fæddist, hef unnið og búið á Suðurnesjum alla mína ævi. Ég bjó áður í Keflavík en bý nú í Njarðvík.
 
Ég hef aldrei þekkt neitt annað en þennan heimabæ okkar verandi íbúi, móðir, hjúkrunarfræðingur á HSS og nú á síðustu árum bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.
 
Allar þessar stöður hafa veitt mér mismunandi innsýnir í stöðu okkar sem íbúa.
 
Eitt sem rekur mig þó alltaf jafn mikið á gat er staða heilbrigðismála á Suðurnesjum. Ég hef rætt stöðu heilbrigðismála oft og mikið, skrifað geinar, borið saman umdæmi og annað og alltaf er niðurstaðan sú sama.... Við erum eftirbátar annarra umdæma Íslands í fjárveitingu, áhuga og hreinlega umhyggju hvað varðar öll okkar heilbrigðismál.
 
Lengi var ég undrandi yfir þessu og leitaði skýringa en fann engar. Hérna vantar mig einmitt rökin fyrir því heita orði.... Af hverju?
 
Af hverju fær HSS lægstu fjárlög á landinu til heilsugæslu?
 
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2018 – Fjárframlög til heilbrigðisstofnana á hvern íbúa kemur fram að HSS fær langlægstu framlögin per íbúa á landinu, tæplega 117 þúsund kr á íbúa meðan að Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 153 þúsund og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða trónir á toppnum með 387 þúsund krónur per íbúa...
 
Samkvæmt heildarframlögum í fjárlagafrumvarpi 2018 kemur fram að framlög til heilbrigðisstofnana tengt íbúafjölda er HSS með næstlægstu fjárframlögin en þó með þriðja mesta íbúafjöldan á landinu. Íbúafjöldinn okkar er rétt undir íbúafjölda HSU á Selfossi en þó fáum við helmingi minna fjármagni útdeilt – ástæðan – það finnst engin ástæða.
 
Ef litið er til fjármagns sjúkrahúsþjónustu fær HSS næstminnst á landinu.
 
Þegar litið er til heilsugæslu fær HSS minnsta fjármagn á landinu eða um 59 þúsund krónur per íbúa. Heilbrigðisstofnun Norðurlands er næst fyrir ofan okkur með 81 þúsund krónur per íbúa og svo fer talan bara hækkandi þar til kemur að heilbrigðisstofnun Austurlands á toppnum með 165 þúsund krónur per íbúa.... ástæðan – það er engin ástæða. Þetta hefur bara alltaf verið svona.
 
Svona að lokum eins og þetta hafi ekki verið nóg upptalning hér að ofan þá eru hjúkrunar- og dvalarrými á hverja þúsund íbúa langfæst á Suðurnesjum með 3,8 pláss að meðaltali meðan að heilbrigðisumdæmi Suðurlands krónir á toppnum með 12,0 pláss að meðaltali.
 
Ástæðan – það er engin ástæða. Engin rök. Af hverju er eitt svæði fjársvelt á öllum sviðum heilbrigðisþjónusu með engum haldbærum rökum?
 
Ár eftir ár kjósum við fólk á Alþingi okkar íslendinga, en hvað erum við í raun að gera?
 
Það sem við eigum að vera að gera er að kjósa hæft fólk sem berst við hæl og hnakka fyrir okkur í okkar hag. Þegar ég sé svona tölur með engum haldbærum útskýringum nema það að ástandið hafi alltaf verið svona þá hreinlega stend ég á gati. Af hverju eigum við Suðurnesjamenn alltaf minna skilið en aðrir landsmenn samkvæmt Alþingi? Hver er hagsmunaaðili Suðurnesja?
 
Íbúafjöldinn á Suðurnesjum hefur stóraukist síðustu þrjú ár og engin lát virðast á fjölda nýrra íbúa. Þrátt fyrir það er Alþingi ekki að taka til greina aukinn fjölda íbúa, aukinn fjölda hælisleitenda, aukinn fjölda ferðamanna og aukið álag á grunnstoðirnar okkar. Heilsugæslan okkar þarf aukið fjármagn eins og öll heilbrigðisstofnunin okkar. Taka verður einnig tillit til aukningu á hjúkrunarheimilum fyrir eldri borgarana okkar.
 
Áherslan okkar í ljósi stöðu heilbrigðiskerfisins okkar ætti að vera á eflingu heilsugæslu, ekki eflingu einkareksturs líkt og áherslan hefur verið hjá síðustu ríkisstjórn. Ekki það að öll einkarekin heilbrigðisþjónusta sé slæm en það sem gerist í kjölfar mikils einkareksturs er að fjárflæðið streymir frá heilsugæslunum okkar um allt land til að byggja upp einkareksturinn á móti. Við erum ekki það mörg að við eigum að þurfa svona stórt einkarekið kerfi. Eflum heilbrigðiskerfið okkar fyrir okkur öll.
 
Okkur vantar aukið fjármagn og aukinn skilning. Við eigum ekki minna skilið en hinir. Þetta er ekki sanngjarnt né réttlátt og við Suðurnesjamenn eigum ekki að sætta okkur við þetta!
 
Ég vil hvetja Suðurnesjamenn og alla áhugasama að mæta á fund þann 19. október í bíósal Duus húsa varðandi fjárveitingar ríkisstofnanna á Suðurnesjum.
 
Guðný Birna.
Skipar fimmta sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 
Bílakjarninn
Bílakjarninn