Spila- og skemmtikvöld Samfylkingarinnar í kvöld
Samfylkingin býður öllum sem fæddir eru 1943 eða fyrr til spila- og skemmtikvölds á Víkinni, Hafnargötu 80 Reykjanesbæ þriðjudagskvöldið 22. apríl. Skemmtunin hefst kl. 20:00. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá sem hefst á því að Jón Gunnarsson frambjóðandi S-listans í Suðurkjördæmi og Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar flytja ávörp.Síðan verður spilað hálft kort í félagsvist, glæsileg verðlaun í boði. Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður fer með vísur í léttum dúr og boðið verður upp á gómsætar vöfflur með sultu
og rjóma.
Sveindís Valdimarsdóttir bæjarfulltrúi og Guðmundur Hermannsson syngja og spila og rúsínan í pysluendanum verður óvænt lokaatriði.
Allir velkomnir
Kosningamiðstöð Samfylkingarinnar Hafnargötu 25 Reykjanesbæ S:421-3030 opin mán-fös 17-22 laugardaga 10-16