Aðsent

Sorgin og fjölskyldan í Keflavíkurkirkju í kvöld
Mánudagur 28. nóvember 2016 kl. 09:29

Sorgin og fjölskyldan í Keflavíkurkirkju í kvöld

Vigfús Bjarni Alberbertsson flytur erindi sem ber yfirskriftina Sorgin og fjölskyldan í Keflavíkurkirkju í kvöld, mánudagskvöldið 28. nóvember kl. 20:00.
 
Vigfús Bjarni er sjúkrahúsprestur á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi og hefur starfs síns vegna mætt fólki við erfiðar aðstæður og fylgt því í úrvinnslu áfalla og sorgar. Hann hefur lokið framhaldsnámi í sorgar- og áfallavinnu frá Bandaríkjunum.
 
Hann fjallar hér um sorg og sorgarviðbrögð í fjölskyldum. Að finna til sorgar er mannlegt og ætti engin sem telur sig hafa þörf fyrir að hlusta að láta erindið fram hjá sér fara, segir í tilkynningu.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024