Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þriðjudagur 25. mars 2008 kl. 10:18

Sól í Straumi mótmælir lagningu línumannvirkja

Sól í Straumi skorar á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hafna tilleitan Landsnets um að loftlínur fyrir álver í Helguvík fari í gegnum bæjarlandið. Þegar tekist var á um stækkun álversins í Straumsvík kom í fram gríðarleg andstaða við línumannvirkin sem til hefði þurft.

Ef álver rís í Helguvík þarf umfangsmikla orkuflutninga í gegnum fjölmörg sveitarfélög sem eiga þessvegna ríkra hagsmuna að gæta.Auk Hafnarfjarðar þyrftu Vogar, Grindavík, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Ölfus að breyta skipulagi. Hvað Hafnarfjörð varðar þá væri um að ræða breytingu sem innifelur hluta af þeim áformum sem Hafnfirðingar hafa nú þegar hafnað með lýðræðislegum hætti. Af virðingu við íbúa og kjósendur er þess krafist að öllum tillögum um loftlínur fyrir hugsanlegt álver í Helguvik verði alfarið hafnað.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sól í Straumi