Sól á Suðurnesjum fagnar samþykkt hreppsnefndar Flóahrepps
Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum fagna samþykkt hreppsnefndar Flóahrepps frá þrettánda júní 2007, um að hafa Urriðafossvirkjun ekki inni á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samþykktin er mikil hvatning til þeirra sem vilja verja náttúruna við Þjórsá og hindra að orka þaðan verði seld til stóriðju.
Sólirnar þrjár telja viðbrögð Landsvirkjunar við ákvörðun hreppsnefndar um drög að skipulagstillögu án virkjunar ámælisverð. Landsvirkjun gat eins og aðrir hagsmunaaðilar komið með athugasemdir sínar við auglýsta tillögu hreppsnefndar og virt um leið lýðræðislegar viðurkenndar aðferðir. Óeðlilegt er að skipulagstillögurnar séu nú orðnar tvær eftir heimsókn Landsvirkjunar í Flóann.
Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum vilja ekki trúa því að hreppsnefnd Flóahrepps sé boðið að selja náttúruperlur á svæðinu fyrir opinberar framkvæmdir eða þjónustu, hvað þá að hreppsnefndin gangi að slíkum afarkostum. Flóamenn eiga rétt á almannaþjónustu án þess að þurfa að greiða hana slíku verði. Landsvirkjun getur varla haft umboð ríkisins til þess að gera Flóamönnum gylliboð um fjármuni almennings.
Við treystum því að hreppsnefnd Flóahrepps standi með þjóðinni í baráttunni fyrir náttúru landsins og jafnræði þegnanna.
F.h. Sólar á Suðurlandi
Guðfinnur Jakobsson
F.h. Sólar í Straumi
Valgerður Halldórsdóttir
F.h. Sólar á Suðurnesjum
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir