Bygg
Bygg

Aðsent

Þriðjudagur 10. júní 2003 kl. 15:42

Sóknarnefndarformaður Ytri Njarðvíkursóknar: Fréttamennska DV er slæm

Fréttatilkynning vegna fréttar í DV þann 28. maí sl. þar sem fram kemur að fyrrverandi meðhjálpari hafi þann 23. maí kært sóknarnefnd Ytri-Njarðvíkurkirkju og kirkjugarðsstjórn Njarðvíkursókna fyrir bókhaldsbrot og fjársvik.Sóknarnefnd hefur borist bréf frá lögreglunni dagsettu 4. júní þar sem fram kemur að rannsókn málsins sé lokið og ekkert í gögnum eða bókhaldi kirkjunnar sem bendi til þess að nokkurt refsivert brot hafi verið framið og því þyki ekki ástæða til frekari rannsóknar í málinu. Það er mjög bagalegt að sitja undir slíkum ásökunum og sú fréttamennska sem birtist umræddri grein DV er slæm þar sem rangt er farið með staðreyndir. Má þar nefna að hvergi í kærunni er t.a.m. minnst á bílastyrk til sóknarprestsins sem DV tekur þó upp. Rétt er að árétta að öll þau kjör sem að núverandi sóknarprestur hefur eru þau sömu og forveri hans hafði en rúm 11. ár hefur núverandi sóknarprestur starfað í Njarðvíkur-prestakalli. Mjög bagalegt er að sitja undir ásökunum sem þessum, sérstaklega þegar hlutaeigendur eru þess fullvissir að þær eiga við engin rök að styðjast, eins og staðfest hefur verið. Þessar grófu ásakanir snerta ekki aðeins sóknarnefnd og sóknarprest heldur líka virt bókhaldsfyrirtæki sem fer yfir allar fjárreiður kirkju og kirkjugarðs. Einnig er rétt að árétta að yfir framkvæmdir og rekstur Ytri - Njarðvíkurkirkju og kirkjugarðsins fer aðalsafnaðarfundur , héraðsfundur, Ríkisendurskoðun og öllum reglugerðum er fylgt eftir til hlítar. Sóknarnefnd og kirkjugarðsstjórn mun fylgja máli þessu eftir með lögformlegum hætti.

Virðingarfyllst,
Ingólfur Bárðarson formaður
sóknarnefndar Ytri-Njarðvíkursóknar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn