Sókn er besta vörnin!
Aðstoð við núverandi starfsmenn varnaliðsins er fyrsta verkefnið sem nú liggur fyrir eins og skýrt kom fram í þríþættri verkefnaáætlun Árna Sigfússonar bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Þessu er ég sammála um leið og ég ítreka mikilvægi þess að hefja nú þegar kraftmikla vinnu á þessum þætti sem tengist starfsfólki og fjölskyldum þeirra. Aðrir þættir í verkefnaáætlun bæjarstjórans fjallaði um framkvæmdaráætlun um nútímavæðingu varna og tími nýrra tækifæra.
Þrátt fyrir mikið áfall við skyndilegt brotthvarf varnaliðsins eftir 50 ár veru hér á svæðinu er ljóst að Reykjanesbær hefur aldrei verið betur í stakk búinn til að takast á við þetta stóra verkefni. Fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu hefur verið mikil á síðustu árum enda hefur atvinnuleysi verið með minnsta móti þrátt fyrir mikla íbúafjölgun á sama tíma. Uppbygging við alþjóðaflugvöllinn gengur vel, tækifæri eru að skapast í ferðaþjónustu og öflug atvinnuuppbygging að hefjast í glæsilegu atvinnusvæði í Helguvík. Þá skiptir tvöföldun Reykjanesbrautar og þær framkvæmdir sem nú standa þar yfir sköpum í þeirri stöðu sem við stöndum nú frammi fyrir. Það væri ekki glæsilegt að eiga þá baráttu eftir á þessum tímapunkti!
Næstu skref í atvinnuuppbygginu þurfa að vera snögg og hnitmiðuð. Þar þurfa sveitarstjórnir svæðisins og ríkisvaldið að vinna saman að þeim tækifærum sem nú þegar eru til staðar og þannig draga strax úr þeim áhrifum sem brotthvarf varnaliðsins vissulega hefur. Síðan þurfum við að tryggja yfirráð yfir varnarsvæðinu en ég hef sterka trú á öflugri framtíð svæðisins með þeim miklum mannvirkjum sem þar eru og tel meiri líkur en minni á að barist verði um þessa einstöku aðstöðu fyrir ýmis konar atvinnumöguleika. Því er mikilvægt að við byrjum strax á að greina möguleika svæðisins og fara yfir þær fjölmörgu hugmyndir sem upp hafa komið. Síðan verðum við að gefa okkur tíma til að velja úr arðbærustu tækifærin sem þá fælu í sér glæsilega framtíðarsýn á Reykjanesi. Höfum í huga að við eigum að velja þá framtíð sjálf að þessu sinni og ekki er víst að þau verkefni sem mest hefur nú verið talað um séu þau bestu þegar upp er staðið. En í mínum huga er víst að sú framtíð er bjartari en óvissuástand síðustu ára hefur boðið uppá!
Ég er tilbúinn til að vinna vel í þessu mikilvæga verkefni fyrir fyrirtæki og íbúa svæðisins, koma með nýjar hugmyndir þessu tengdu og fylgja þeim eftir. Við skulum nú saman styðja eins vel og mögulegt er við bakið á því fólki sem nú missir vinnu sína. Samhliða tökum við fyrstu skrefin að nýrri framtíð og gerum Reykjanesbæ að besta og eftirsóttasta búsetukosti landsins til næstu 50 ára.
Steinþór Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.