Bygg
Bygg

Aðsent

Sóðaleg umgengni skyndibitafólksins
Föstudagur 3. nóvember 2006 kl. 12:32

Sóðaleg umgengni skyndibitafólksins

Planið við Nýung er nánast á hverjum degi eins og öskuhaugur eftir þá aðila sem næra sig á skyndibitafæði og nenna ekki að labba nokkra metra og setja umbúðirnar í ruslafötuna.

Þessi framkoma er lýsandi dæmi um vanvirðingu til þeirra sem eru alla daga að reyna að hafa bæinn okkar aðlaðandi og hreinann. Ég er sannfærður um það að viðkomandi aðilar segðu eitthvað við mann ef ég færi heim til þeirra og henti rusli sem kæmi frá mínu heimili á lóðina þeirra.

Ég skora því á alla þá sem stunda það að kasta rusli út um gluggana á bílum sínum að líta í eigin barm og taka sig á í þessum efnum.

Kveðja Tómas J. Knútsson
Bílakjarninn
Bílakjarninn