HSS
HSS

Aðsent

Miðvikudagur 3. mars 2004 kl. 16:16

Snúðu byssunni rétt áður en þú skýtur

Ungur maður Andri Örn Víðisson, ritari félags ungra sjálfstæðismanna skrifar hér kraftmikla grein og lýsir andstöðu sinni á afstöðu Jóhanns Geirdals vegna bílastæða í holtinu ofan við FS. Eðlilegt er að menn hafi mismunandi skoðanir á þessu og komið hefur fram að skoðanamunur í bæjarstjórn vegna þessa máls. Það vakti athygli mína að Andri Örn taldi ekki hafa verið vanþörf á að skamma minnihlutann og vitnaði þar til greinar sem hann hafði birt undir nafninu AUMUR MINNIHLUTI  á heimasíðu félags ungra sjálfstæðismanna og ákvað því að skoða þessa grein Andra um okkur í minnihlutanum. Grein Andra hefst með þessum hætti: Það vakti athygli mína að Jóhann Geirdal skyldi rísa upp eftir öll lætin í kringum leikskólagjöldin, og skrifa grein í Víkurfréttir með fyrirsögninni “Samstaða skilar árangri”.

Ég verð að hryggja Andra Örn með því að umræddur Jóhann Geirdal skrifaði ekki þessa grein heldur er höfundur greinarinnar undirritaður. Sakni Andri Örn þess að fá ekki að heyra meira í Jóhanni Geirdal eða minnihlutanum er ráð að senda honum áskorun  um að skrifa meira. Ég í að minnsta ætla að taka þessari áskorun.  En umfram allt að snúa byssunni rétt áður en maður skýtur.

Með kveðju!

Guðbrandur Einarsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
í Reykjanesbæ.
Bílakjarninn
Bílakjarninn