Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þriðjudagur 7. október 2003 kl. 08:45

Slæmt atvinnuástand í málmiðnaði á Suðurnesjum

Undanfarin misseri hefur atvinnuástand í málmiðnaði á Suðurnesjum verið slæmt og farið versnandi. Þegar þannig árar hverfa mörg fyrirtæki af markaði en önnur draga saman seglin.
Undanfarið hafa fjölmörg fyrirtæki í málmiðnaði á Suðurnesjum gripið til fækkunar málmiðnaðarmanna. Traust og öflug fyrirtæki, með áratuga reynslu, hafa gripið til uppsagna. Sem dæmi má nefna að undanfarna mánuði hafa Íslenskir Aðalverktakar h/f gripið til þeirra ráðstafana að segja stórum hluta málmiðnaðarmanna sinna upp störfum á járnaverkstæði sínu á Keflavíkurflugvelli. Járnaverkstæði ÍAV á Keflavíkurflugvelli hefur um árabil verið eitt öflugasta járnaverkstæði landsins og því eru tíðindin um fjöldauppsagnir þar mikill skellur fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum. Fyrir u.þ.b. einu ári störfuðu þar fast að 20 málmiðnaðarmenn en eftir að uppsagnir þar taka gildi verða einungis eftir 5 starfsmenn og sér hver maður að með því er dregið verulega úr þeim miklu möguleikum sem verkstæðið hefur til að taka að sér stór og flókin verkefni sem hingað til hefur verið sérstaða þess.
Flestir af þeim málmiðnaðarmönnum sem sagt hefur verið upp störfum undanfarið eru með gríðarlega yfirgripsmikla starfsreynslu og langan starfsaldur í málmiðnaði.
Eins og fram hefur komið er atvinnuástand í málmiðnaði á Suðurnesjum ekki gott og ekki miklar líkur á að þeir málmiðnaðarmenn sem hafa verið að láta af störfum eða munu láta af störfum á næstunni, fái starf við sitt hæfi hér á Suðurnesjum. Brottflutningur þaulreyndra og sérhæfðra málmiðnaðarmanna  af Suðurnesjum, vegna bágs atvinnuástands, er nokkuð sem hafa verður verulegar áhyggjur af og mun, ef af verður, hafa veruleg áhrif á samfélagið á Suðurnesjum.
Nauðsynlegt er að stjórnvöld á Suðurnesjum haldi vöku sinni gagnvart atvinnumálum á svæðinu. Suðurnesin mega alls ekki við að missa þann fjölda hæfra málmiðnaðarmanna burt af svæðinu sem fyrirsjáanlegt er að hverfi ef ekkert verður að gert, því með því tapast dýrmæt þekking sem erfitt verður að byggja upp að nýju.

Sigfús Rúnar Eysteinsson
formaður Iðnsveinafélags Suðurnesja
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024