Skýr vilji til samstarfs
Ríkisstjórnarfundurinn sem haldinn var í Reykjanesbæ á þriðjudaginn er afar mikilvægur fyrir okkur Suðurnesjamenn. Sveitarstjórnarmenn og ríkisstjórnin staðfestu þar með táknrænum hætti skýran vilja til samstarfs um atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Þó allir aðilar hafi áður lýst yfir vilja til samstarfs þá hafa skeytasendingar verið með þeim hætti að efast hefði mátt um eindreginn vilja. Þess vegna skipta þau jákvæðu skilaboð sem frá fundinum koma miklu máli.
Það er einnig mikilsvert að á sama tíma og unnið er að atvinnuuppbyggingu þá sé tekist á við þau félagslegu vandamál sem kreppan og atvinnuleysið hefur skapað á Suðurnesjum. Það að lengja hámarkstímabil greiðslu atvinnuleysisbóta úr þremur árum í fjögur skiptir sveitarfélögin fjárhagslega máli á svæði þar sem langtímaatvinnuleysi er staðreynd og fjárhagsaðstoðin á höndum sveitarfélaganna. Einnig skiptir það skjólstæðinga umboðsmann skuldara miklu að starfsmenn embættisins verði staðsettir á svæðinu.
Neikvæð áhrif kreppunnar koma skýrast í ljós í afleiðingum atvinnuleysis á einstaklinga og fjölskyldur. Það að ríkisstjórnin skuli leggja fram fjármagn til að ráðinn verði verkefnisstjóri til að halda utan um samstarf sveitarfélaganna í velferðarmálum með aðkomu vinnumálastofnunar, íbúðalánasjóðs og umboðsmanns skuldara tryggir, m.a. bætt upplýsingaflæði og styttir boðleiðir þeirra sem takast á við vandann. Framlag til að tryggja rekstrargrundvöll og samstarf skólanna á Suðurnesjum til að þróa ný fjölbreytt námsframboð, námsráðgjöf og hvatningu til þeirra sem minnstu menntun hafa eða eru án atvinnu er einnig jákvætt og mikilvægt skref.
Ég hef lagt á það áherslu að jafnaðarmenn leggi Suðurnesjamönnum aukið lið við að takast á við vanda svæðisins. Það er gert og því verður vel fylgt eftir.
Oddný G. Harðardóttir
alþingismaður