Skötu- og fiskihlaðborð Unglingaráðs Víðis
Hið árlega skötu- og fiskihlaðborð Unglingaráðs Víðis verður haldið í Samkomuhúsinu föstudaginn 19. desember kl. 11:00 - 14:00 og 17:30 - 20:30.
Boðið verður uppá skötu, plokkfisk, siginn fisk, saltfisk og hnoðmör. Verðinu er stillt í hóf og kostar einungis 2000 kr. fyrir manninn.
Komum saman, eigum góðar stundir og styrkjum gott málefni.
Hægt er að panta borð í síma: 8404209 og 8940111.