Skorað á fólk að segja upp viðskiptum við Símann

Ég sjálfur er hjá Símanum með mína þjónustu og hef margsinnis þurft að leggja leið mína í verslun Símans hérna í Keflavík og þar sem ég er ekki á bíl þá á eftir að verða ansi erfitt fyrir mig að fara á höfuðborgasvæðið til að fá aðstoð. Ekki er ég heldur sá allra þolinmóðasti og verð ekki ánægður með það að vera nr.35 í þjónustuveri Símans, 800-7000. Einnig er ég nokkuð viss um að Suðurnesjamenn í heildina eigi ekki eftir að vera ánægðir með þessi málalok.
Allavega er ég orðinn ákveðinn í því að segja upp öllum mínum viðskiptum við fyrirtækið nú á næstunni og snúa mér frekar til samkeppnisaðila þeirra. Þessi þjónusta er rándýr og tel ég þá sem stunda viðskipti við Símann eigi skilið að fá þá allra bestu þjónustu sem völ er á fyrir vikið.
Skora ég þess vegna á Suðurnesjamenn að láta óánægju sína í ljós með því að segja upp viðskiptum við Símann eða senda inn kvörtun. Þessi yfirgangur gengur hreint ekki.
Bjarni Freyr Borgarsson