Skora á ráðherra að leyfa heimabakstur til fjáröflunar fyrir björgunarsveitirnar
Áskorun frá stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Frá stofnun Slysavarnafélags Íslands árið 1928 hafa slysavarnadeildir félagsins selt heimabakað góðgæti. Með slíkri sölu hafa þær fjármagnað öflugar slysavarnir og greitt fyrir björgunartæki og búnað björgunarsveita, landsmönnum öllum til heilla. Ljóst er að heimabaksturinn er meðal mikilvægustu fjáröflunarleiðum sem slysavarnadeildir hafa yfir að ráða í dag. Stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar tekur því heils hugar undir áskorun Kvenfélagasambands Íslands þar sem ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála er hvattur til að breyta matvælalögum nr 93/1995 sem koma í veg fyrir sölu á heimabakstri í fjáröflunarskyni til góðra verka.
Áskorun Kvenfélagasambands Íslands er svohljóðandi:
„Stjórnarfundur Kvenfélagasambands Íslands, haldinn 8. september 2011 á Hallveigarstöðum beinir eftirfarandi tilmælum til ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála: "Kvenfélagasamband Íslands hvetur ráðherra til að leggja fram breytingar á matvælalögum, nr. 93/1995 sem koma í veg fyrir að kvenfélögin í landinu geti elft starf sitt með bakstri og sölu til fjáraflana. Kvenfélagasambandið hvetur ráðherra til að breyta lögunum þannig að félagasamtök geti áfram boðið matvöru til neytenda í þágu góðgerðarmála. Í eitthundrað og fjörutíu ára sögu kvenfélaganna hefur það sýnt sig að framlög þeirra skipta sköpum."
F.h. stjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir