Bygg
Bygg

Aðsent

Sköpum réttlátt, kraftmikið og skapandi Ísland
Þriðjudagur 5. júní 2012 kl. 10:47

Sköpum réttlátt, kraftmikið og skapandi Ísland

Hjörtur M. Guðbjartsson var endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ á aðalfundi félagsins sem haldinn var miðvikudaginn 30. maí. Auk Hjartar skipa þau Guðný Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Skarphéðinsson, Johan D Jónsson og Harpa Eiríksdóttir stjórnina . Varamenn í stjórn voru kosnir þeir Hilmar Hafsteinsson og Stefán B Ólafsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hjörtur fór yfir starfsárið í ræðu sinni sem var kröftugt og grundvallaðist á vikulegum fundum á laugardagsmorgnum í sal Samfylkingarinnar að Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn. Á laugardagsfundunum – sem eru opnir öllum bæjarbúum - er fjallað um bæjarmál fyrir hvern bæjarstjórnarfund og eru fundirnir mjög mikilvægt bakland fyrir  bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. Þá eru landsmálin reglulega til umfjöllunar á laugardagsfundunum en góðir gestir sóttu þá í vetur t.d. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, og þingmenn Samfylkingar í Suðurkjördæmi sem og þingmenn flokksins úr öðrum kjördæmum.  

Á aðalfundinum kom einnig fram að Samfylkingarfélagið í Reykjanesbæ stendur traustum fjárhagslegum fótum sem er mjög mikilvægt enda ábyrgð og aðhald í fjármálum nauðsynlegur grundvöllur heilbrigðs stjórnmálastarfs. Staðan er sú að búið er að greiða upp allar skuldir félagsins og byrjað að safna í sjóð fyrir komandi kosningaár.

Róbert Marshall, þingmaður Suðurkjördæmis, var sérstakur gestur fundarins og fór yfir stöðu mála á þingi í stóru málunum. Að loknum umræðum var eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Samfylkingin í Reykjanesbæ fagnar árangri ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem á erfiðum tímum hefur náð að verja velferðina og auka jöfnuð í samfélaginu. Skýrsla þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands sem kynnt var nýverið sýnir t.d. að tekist hefur að verja lágtekju- og millitekjufólk fyrir áhrifum kreppunnar þrátt fyrir að þjóðin hafi á síðustu árum gengið í gegnum mesta samdráttartíma eftirstríðsáranna.
Mikilvægt er að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur haldi ótrauð á sömu braut og vinni áfram sleitulaust að því að skapa réttlátt, kraftmikið og skapandi Ísland með nýja stjórnarskrá, aukna velferð og réttlátari skiptingu byrða og réttlátari skiptingar arðsins af auðlindum þjóðarinnar“.