HSS
HSS

Aðsent

Skólarnir okkar
Fimmtudagur 20. febrúar 2014 kl. 10:47

Skólarnir okkar

– Baldur Þ. Guðmundsson
 skrifar

Ein mikilvægasta grunnstoð sérhvers samfélags er án efa skólaumhverfið. Við í Reykjanesbæ búum svo vel að skólarnir okkar eru að standa sig framúrskarandi vel á svo mörgum sviðum að eftir er tekið um víðan völl.

Framtíðarsýn í skólamálum sem fylgt hefur verið frá árinu 2010 hlaut í síðasta mánuði nýsköpunarviðurkenningu í opinberri þjónustu og stjórnsýslu. Í framtíðarsýninni er lögð áhersla á að efla þekkingu nemenda í grunngreinum þ.e. læsi og stærðfræði í leik- og grunnskólum, virka skimun og eftirfylgni, samstarf við heimilin og nýtingu og sköpun nýrrar þekkingar. Þannig leggst skólasamfélagið allt á árarnar til að skólastarfið megi verða sem ánægjulegast og skilvirkast.

Krakkarnir okkar hafa síðustu tvö árin verið að bæta sig á samræmdum prófunum og árangurinn hefur sjaldan verið betri en í ár. Af sjö prófum þá náðist árangur yfir meðtali í fimm prófum. Einn af veigameiri þáttunum í þeim árangri sem náðst hefur má þakka lestrarskimun í þriðja, sjötta og níunda bekk. Þannig má greina lestrarvanda og bregðast við með viðeigandi hætti. Nýjustu skimanir sýna að vel læsum börnum fjölgar og börnum sem eru illa læs fækkar.

Nýverið var birt skýrsla um ytra mat á Myllubakkaskóla sem matsdeild Námsmatsstofnunar vann fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Matið náði til stjórnunar, náms og kennslu, innra mats og lesturs. Skemmst er frá því að segja að niðurstöður úr matinu voru mjög jákvæðar og bera stjórnendum, kennurum og starfsfólki mjög gott vitni. Aðeins hafa verið unnar 8 matsgerðir á þeim 192 grunnskólum sem eru á Íslandi og var Myllubakki fyrstur af skólum Reykjanesbæjar til að fá þetta ytra mat.

Leikskólarnir gegna líka lykilhlutverki í að undirbúa börnin okkar fyrir framtíðina. Læsi í sem víðustum skilningi er stór þáttur í skólastarfinu og eru leikskólar Reykjanesbæjar orðnir landsþekktir fyrir áherslur sínar á stærðfræði og læsi. En verkefni leikskólanna eru mjög fjölbreytt og nú hefur Leikskólinn Holt fengið tilnefningu til Evrópuverðlauna 2014   fyrir e-twinning verkefnið "Talking Pictures". Verkefnið var valið úr 134 verkefnum víðs vegar að úr Evrópu og lenti í einu af þremur efstu sætunum.

Þó hér séu nefnd tvödæmi um skóla sem standa vel undir væntingum þá eru allir skólar bæjarins að vinna mjög gott starf og nú er farið að leita til leik- og grunnskólanna okkar eftir hugmyndum og rýnt í vinnubrögðin sem þar eru viðhöfð. Framundan er síðan spjaldtölvuvæðingin sem kemur til með að þróa skólastarfið í áður óþekktar víddir.

Það er ekki sjálfgefið að skólastarf sé með þeim blóma sem ég er hér að lýsa en þetta væri ekki mögulegt nema fyrir það hve skólarnir í Reykjanesbæ eru vel mannaðir. Stjórnendur, kennarar og starfsfólk eru að leggja á sig mikla vinnu til að ná fram því besta hjá börnunum okkar og gera það af mikilli prýði.

Við getum því glaðst yfir þeirri stöðu sem skólarnir eru í  og litið björtum augum til komandi tíma.
Áfram Reykjanesbær!

Baldur Þ. Guðmundsson


formaður Fræðsluráðs Reykjanesbæjar
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn