Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Skólarnir eru að byrja
Fimmtudagur 18. ágúst 2005 kl. 12:18

Skólarnir eru að byrja

Flestir grunnskólar landsins byrja 22. ágúst n.k. og þá breytist ýmislegt  í hinu hefðbundna fjölskyldulífi.
Skv. upplýsingum frá Hagstofu Íslands munu grunnskólanemar vera rúmlega
49 þúsund  eða 49.039 á skólaárinu 2005 - 2006 þar af í Reykjavík 16.920 nemendur.  Búast má við að vikan 22. - 29. ágúst verði erilsöm hjá mörgum foreldrum og skólafólki sem hefur áhrif á mörgum sviðum þjóðlífsins. Á þessum árstíma er margt fólk að endurskipuleggja sitt daglega líf. Sumir nemendur eru að færast milli skólastiga t.d. frá leikskóla yfir í grunnskóla eða frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla, eru að hefja háskólanám eða að byrja á leikskóla.
Sumar fjölskyldur búa við það að foreldrarnir og jafnvel afi og amma ákveða að fara í nám  Þannig að gera má ráð fyrir að ýmsar breytingar verði á högum fólks  þegar skólarnir byrja svo ekki sé nú talað um alla sem eru á þessu hausti að fóta sig í  nýju íbúðahverfi eða nýju húsnæði á öðru svæði en þeir eru vanir. Á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið miklar breytingar á gatnakerfinu og margir eru um þessar mundir að huga að nýjum aksturleiðum á áfangastað. Strætókerfið hefur breyst og einhverjir þurfa að setja sig inn í þær breytingar með hugsanlega hagræðingu í huga.

Flest sveitafélög hafa fyrirhyggju hvað þessar þjóðlífsbreytingar varðar og er þá aðallega verið að huga að öryggi barna í umferðinni og vegfarendur beðnir að taka tillit til aðstæðna en það er að ýmsu fleiru að hyggja. Starfsemi foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum landsins liggur að mestu niðri yfir hásumarið en strax eftir verslunarmannahelgi er hafist handa við undirbúning hauststarfsins. Þá eru foreldrar nýrra nemenda boðnir velkomnir í foreldrafélögin og bekkjarfulltrúar taka til starfa. Yfirleitt eru bekkjarfulltrúar kosnir á námskynningum á haustin en margir skólar halda nú aðalfundi á vorin og hafa skipulagt að vori upphaf skólans hvað foreldrasamstarfið varðar.
Foreldraráð sem starfa skv. lögum  með skólastjórum yfirfara skólanámskrár, stundatöflur og huga að viðurværi og velferð barna í grunnskólum s.s. öryggi skólabarna sem gott er að huga að einmitt við upphaf skólans og laga það sem betur má fara.

Umsjónarkennarar eru með viðtalstíma sem oftast er getið um í stundaskrá nemenda  og skóladagatal og  innkaupalista er oft hægt að sjá á heimsíðum skóla jafnvel fyrir skólasetningu. Auk þess starfa skólahjúkrunarfræðingar og námsráðgjafar innan skólanna og geta foreldrar leitað til þeirra á auglýstum viðtalstímum.
Heimili og skóli, landssamtök foreldra beina þeim tilmælum til foreldra að huga vel að börnum sínum sem mörg hver hafa byggt upp væntingar eða kannski kvíða.  Samtökin vilja einnig hvetja foreldra til að taka virkan þátt í foreldrasamstarfi. Rannsóknir sýna að mikill ávinningur er af þátttöku foreldra í skólastarfi og góðri samvinnu heimila og skóla.  Milli þessara aðila þarf að ríkja trúnaður og jákvætt viðmót.  Samtökin hvetja foreldra til að leita sér upplýsinga um hvaðeina er varðar skólagöngu barnsins  hjá starfsfólki skóla, hjá fræðsluyfirvöldum sveitarfélaganna eða á heimasíðu samtakanna. www.heimiliogskoli.is.    

Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri.
Heimili og skóli - landssamtök foreldra

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024