Skjótt skipast veður í lofti

Markaðurinn hefur sinn gang segja spekingarnir og án þess að því er virðist að tala við kóng eða prest ákveða eigendur GGE að sameinast útrásararmi Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjavík Energy Invest með þeim rökum að fyrirtækin væru byrjuð að rekast á hvort annað á erlendum mörkuðum. Flestir eru sammála um að sú gjörð í sjálfu sé bæði skynsöm og rétt, um það er ekki deilt. Hinsvegar held ég að það sé nánast samdómaálit allra að aðferðafræðin sem beitt var við þessa sameiningu er alls ekki í anda þess lýðræðis sem við Íslendingar teljum okkur standa fyrir. Af því er best verður séð af fréttum þeim er berast af málinu hafa t.d hvorki stjórn hitaveitunnar eða Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fengið möguleika á að tjá sig um málið fyrr en það var gengið í gegn. Við sameiningu REI og GGE lögðu félöginn OR og GGE inn eignarhluta sína í Hitaveitu Suðurnesja sem nú er 48%.
Hugmyndir hafa verið uppi um að skipta hitaveitunni upp þannig að Reykjanesbær eignist meirihluta í fyrirtæki sem tryggir að vatn, hiti, og rafmagn ásamt frárennsli verði í meirihlutaeign Reyknesinga, en öll réttindin því fylgjandi verði í höndum REI. Þetta myndi þýða fyrir okkur íbúa Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Vestmannaeyja að við verðum undir hælnum á REI hvað varðar verðlagningu á þessum gæðum. Þetta getur í mínum huga ekki verið það sem var lagt upp með þegar ríkið ákvað að selja hlut sinn, og samræmist ekki á nokkurn hátt þeim hugmyndum sem kynntar voru í aðdraganda sölunnar.
Það er alveg ljóst af viðbrögðum fólks án tillits til flokksskirteina, án tillits til búsetu, að flestum finnst hér heldur bratt farið og skilja ekki þann hraða sem á málinu er.
Eftir atburði dagsins í dag 8/10 skyldi maður ætla að þeir sem ennþá ráða yfir meirhlutanum í Hitaveitu Suðurnesja þ.e. Reykjanesbær 34,75%, Hafnarfjörður 15,42% Grindavík Sandgerði, Garður og Vogar 1,25%, haldi að sér höndum þar til menn hafa orðið sammála um hvernig aðkomu einkaaðila að orkufyrirtækjum skuli háttað og almenn sátt náist þar um. Það myndi vera í anda sáttarsamkomulagsins sem menn undirrituðu á sumarmánuðum.
Virðingarfyllst
Hannes Friðriksson
Íbúi í Reykjanesbæ.