HSS
HSS

Aðsent

Mánudagur 22. október 2001 kl. 10:02

Skipuleggjum hverfi - ekki einstakar lóðir

Skipulags- og byggingarnefnd Reykjanesbæjar ákvað fyrir skömmu að fresta afgreiðslu á tillögu um deiliskipulag fyrir tvær lóðir í Njarðvíkunum, þ.e. Fífumóa númer 11 og 13.
Jóhann Geirdal (S) tók málið upp á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í síðustu viku og benti m.a. á að það þyrfti almennt að kynna deiliskipulög betur fyrir bæjarbúum, en verið hefur. Varðandi Fífumóalóðirnar sagði Jóhann að hann væri alfarið á móti því að tvær lóðir væru deiliskipulagðar, það þyrfti að skipuleggja hverfin í heild sinni. „Við verðum að horfa á heildina en ég hef bent á þetta oft áður“, sagði Jóhann.
Bílakjarninn
Bílakjarninn