Bygg
Bygg

Aðsent

Sunnudagur 21. október 2007 kl. 13:09

Skipulagsmál Sandgerðis: Sorgleg skammsýni

Þegar kemur að skipulagsmálum sveitarfélaga og bæjarfélaga er næsta öruggt að flestir eru sammála um að vera ósammála þegar þau ber á góma. Hvernig á því stendur að ráðamönnum, lýðræðslega kosnum, tekst ekki að vera í betri takt við fólkið sem byggir bæi og borg, er umhugsunarefni. Endalausar ýfingar og árekstrar í hverju bæjarfélagi á eftir öðru vekur upp spurningar um bætta stjórnsýslu og aðrar áherslur í skipulagsmálum en hingað til hafa verið viðhafðar. Ekki er opnað svo dagblað að árekstar og hatrammar deilur um skipulasmál séu þar daglegt brauð.

Í þessum skrifuðum orðum hefur skipulagsfulltrúi, í nafni bæjarstjórnar Sandgerðis, auglýst tillögur til samþykktar að deiluskipulagi sem afmarkast af svæði niður af Norðurtúni og Miðtúni í átt til sjávar. Þarna er um fallegt og náttúrulegt útivistarsvæði að ræða sem fórna á undir atvinnuhúsnæði, já þið lásuð rétt, atvinnuhúsnæði með allt að 6 metra mænishæð frá grunnplötu. Það hvarflar að manni að bæjarstjórn Sandgerðis sé í alvarlegri tilvistarkreppu þegar kemur að úthlutun lóða undir atvinnuhúsnæði. Að fórna þessu svæði undir atvinnustarfsemi er sorglegt þegar Sandgerðisbær hefur yfir að ráða ótakmörkuðu landi undir slíka starfsemi. Hef ég þegar viðrað hugmyndir mínar við bæjarstjórn um framtíðar útivistarsvæði á þessum stað en talað þar fyrir daufum eyrum. Færum þetta fallega svæði framtíðinni að gjöf og flytjum atvinnustarfsemi út úr bænum. Rockville-svæðið bíður. Ekki meiri þungaflutninga inn í okkar fjölskylduvæna bæ.

Í nútíma samfélagi gerir fólk þær kröfur að atvinnustarfsemi sé skilin frá íbúðarbyggð. Þungaflutningar í gegnum bæjarfélög eru tímaskekkja og að sjálfsögðu ber að draga úr þeim eins og kostur er, enda fylgir þeim mikil röskun og hætta. Það er því nauðsynlegt fyrir þá sem sinna skipulagsmálum að vanda til verka svo að árekstrum milli bæjarstjórna, sveitarstjórna og íbúa fækki. Þá er oft um að ræða aukna atvinnustarfsemi sem þrengir að íbúabyggð. Gott dæmi um vandað skipulag atvinnuhúsnæðis má sjá rísa í grennd við Helguvík í Reykjanesbæ. Nauðsynlegt er fyrir bæjar- og sveitarstjórnir að rasa ekki um ráð fram og haga skipulagsmálum í samræmi við þarfir fólksins hverju sinni og forðast að reka fleyg ósamlyndis og tortryggni í raðir íbúa.

Sigurjón Gunnarsson
Norðurtúni 6
245 Sandgerði
Bílakjarninn
Bílakjarninn