Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Skildi skotið fyrir ritstjóra
Laugardagur 19. maí 2012 kl. 18:07

Skildi skotið fyrir ritstjóra


Ekki vil ég elta ólarnar um of við athugasemdir bæjarstjóra við réttmætri og málefnalegri gagnrýni flokkssystra minna á ósanngjörnum og órökstuddum dylgjum um störf fjármálaráðherra, Oddnýjar Harðardóttur, sem birtust nýverið í leiðara Víkurfrétta. Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar kom máli sínu vel til skila í gagnmerkri og rökstuddri grein sinni á vef Víkurfrétta.


Bæjarstjóri bregður skildi fyrir ritstjórann í pistli sínum. Ekki er ég viss um að það leiði til aukinnar upplýstrar, gagnrýnnar og yfirvegaðrar umræðu um lands- og bæjarmálin. En til þess að auka líkur á því gæti fyrsta skrefið í þá átt t.d. verið vönduð úttekt Víkurfrétta á eignasölu Reykjanesbæjar frá árinu 2002. Þar væri hægt að styðjast við skriflega fyrirspurn okkar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um sölu eigna Reykjanesbæjar frá árinu 2002 sem skiljanlega náðist ekki að svara fyrir síðasta bæjarstjórnarfund – enda um umfangsmikið mál að ræða - en svörin munu liggja fyrir næsta bæjarstjórnarfundi 29. maí.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Mér fannst slæmt að bæjarstjórinn skuli í pistli sínum detta í þá gryfju að gera lítið úr Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ en hann setur t.d. hana og stjórn félagsins í gæsalappir í pistlinum „fimm konur sem kalla sig „kvennahreyfingu Samfylkingarinnar“....“. Þetta er alveg ný hlið á bæjarstjóranum – sem mér hugnast ekki – og satt að að segja ekki í samræmi við fyrri orð og gjörðir hans. Það er ekki gott innlegg í umræðu eða rökræðu að gera lítið úr andmælenda sínum.


Bæjarstjóranum til upplýsingar þá var Kvennahreyfing Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ stofnuð 2007 og þær konur sem undir greinina skrifa kosnar úr hópi félaga sinna til stjórnarsetu þetta starfsárið. Kvennahreyfingin hefur starfað að krafti frá stofnun. Síðastliðinn vetur hafa atvinnumál kvenna á Suðurnesjum verið í brennnnipunkti á fjölda funda með fjölda fyrirlesara. Þær eru sem sagt að vinna að því að fjölga fjölbreyttum atvinnutækifærum á Suðurnesjum – alveg eins og ég og bæjarstjórinn, aðrir bæjarfulltrúar, ríkisstjórnin og þingmenn allra flokka eru að gera alla daga.


Við glöddumst saman á uppstigningardag – bæjarstjórinn, ég, fjölmargir bæjarbúar og tveir ráðherrar - á Nesvöllum þegar að framkvæmdir hófust við fyrstu nýbyggingu fyrir sjúka aldraða á Suðurnesjum, 60 rúma hjúkrunarheimili – eitt af 9 hjúkrunarheimilum sem nú rísa um allt land. Langþráðum tímamót fyrir eldri borgara á Suðurnesjum og mikilvæg framkvæmd fyrir byggingariðnaðinn á svæðinu.


Vinnum saman að því að fjölga þessum stundum þegar samtakamáttur okkar ber árangur.


Eysteinn Eyjólfsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ