Aðsent

Skattatvíburarnir boða mikil útgjöld
Ásmundur Friðriksson
Miðvikudagur 25. október 2017 kl. 11:15

Skattatvíburarnir boða mikil útgjöld

-Skattahugmyndir VG og Samfylkingar eru árás á kjör fólks

Á sama tíma og launþegar ríkisvaldsins eru að leggja fram launakröfur sínar er áhugavert að bera saman skattastefnu Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna á Alþingi. VG og Samfylkingin hafa boðað tugmilljarða aukningu ríkisútgjalda næstu 5 árin eða á bilinu 250 til 360 milljarða. Þessar tillögur komu fram við umræður um 5 ára fjármálaáætlun í þinginu sl. vor og kosta um 50 til 77 milljarða á ári. Til þess að ná inn tekjum til að standa undir þessum auknu útgjöldum hafa VG og Samfylkingin boðað miklar skattahækkanir. Boðun á hækkun veiðigjalda kemur ekki á óvart og enn síður kemur það á óvart að þeir sem eru eldri en 60 ára og eiga skuldlausar eignir fá kaldar kveðjur frá skattatvíburunum VG og Samfylkingunni með boðun á auðlegðarskatti. Það er ekkert nýtt í því að þeir flokkar leggi byrgðar á eldra fólkið umfram aðra. Skattatvíburarnir lögðu mikla áherslu á það í þinginu að laun lækna og hjúkrunarfólks hækkaði eins og raun varð á í síðustu kjarasamningum heilbrigðistétta. Nú leggja tvíburarnir skattaglöðu mesta áherslu á að ná þeim hækkunum til baka með sérstökum hátekjuskatti sem læknar og hátt launaðar heilbrigðisstéttir falla í. Fyrst krefjast skattglöðu tvíburarnir VG og Samfylkingin bættra kjara heilbrigðisstétta en vilja síðan draga ávinninginn til baka í ríkissjóð. Þá afnámu þeir sjómannaafsláttinn og nú á að bæta á saltið í það sár og grípa þá sjómenn sem best bera úr bítum í gildru hátekjuskatts. Sú skattlagning kemur til viðbótar mikilli kjaraskerðingu sem sjómenn hafa orðið fyrir vegna styrkingu krónunnar, en launaskerðing þeirra síðustu misseri má telja í tugum prósenta, líklega 35%, og kveðjan frá skattatvíburunum því köld. Þessi draumahátekjuskattur skattatvíburanna er þó aðeins brot að því sem þarf til að loka útgjaldagatinu sem þeir boða en fram hefur komið að 76% hátekjuskattur á laun umfram 2 m.kr. á mánuði skili aðeins 2,7 milljörðum upp í 50 til 70 milljarða útgjaldaaukningu VG og Samfylkingar á ári. Það verður því leitað til almennings um það sem á vantar.

Skattastefna Sjálfstæðisflokksins er klár og liggur fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir því á kjörtímabilinu 2013 til 2016 að afnema öll vörugjöld og tolla þó enn séu tollar á landbúnaðarvörum. Áhrifin eru lægra vöruverð sem skilar sér beint í vasa neytenda. Neðra þrep tekjuskatts var lækkað úr 40% eftir persónuafslátt í 37% og Sjálfstæðisflokkurinn boðar  að lækka þrepið í 35%. Milliþrepið í tekjuskattinum var afnumið og millitekjuhópurinn fór því í neðra skattþrepið, en hærra þrepið er 46% eftir að persónuafsláttur er nýttur. Þessar skattalækkanir, aukin kaupmáttur, lág verðbólga og verulegar launahækkanir á vinnumarkaði hafa tryggt heimilunum í landinu betri afkomu en áður hefur þekkst.
Hér liggja klárar línur í skattamálum. Það verður kosið um áframhaldandi skattalækkunarstefnu Sjálfstæðisflokksins sem mun skila hjónum með meðaltekjur um 600 þúsund krónum meira í ráðstöfunartekjur á ári. Eða skattahækkunarstefna skattatvíburanna í VG og Samfylkingu sem þeir fara ekki leynt með og mun leggjast þungt á allan almenning í þessu landi. Hlustið bara vandlega á hvað þeir boða í skattamálum, þó aðallega hverju þeir vilja ekki svara.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég mun kjósa með bættum hag heimilanna í landinu. Kjósum X-D á kjördag.

Ásmundur Friðriksson
alþingismaður